Ingunn Rut Sigurðardóttir breytti afstöðu sinni til sakargifta í Reykholtsmálinu í morgun þegar hún játaði sök að hluta. Frá þessu greinir Vísir.Ingunn er ein sexmenninganna sem eru ákærðir fyrir frelsissviptingu, stórfellda líkamsárás, ólögmæta nauðung og rán gagnvart karlmanni á sjötugsaldri í apríl árið 2024 í atburðarás sem lauk með því að brotaþoli komst við vondan leik til Möltu þar sem hann lá um tíma þungt haldinn á sjúkrahúsi og hafði verið rændur 17,6 milljónum.
Hágrét eftir að hún játaði óvænt í Reykholtsmálinu - „Þetta er ekki einföld ákvörðun“