Vegagerðin hefur hafnað beiðni Akureyrarbæjar um að draga til baka fækkun ferða Grímseyjarferjunnar Sæfara. Kemur raunar fram í minnisblaði Vegagerðarinnar að vegna niðurskurðar á framlögum ríkisins til almenningssamgangna sé ekki hægt að bæta aftur í þjónustuna.
Farin var sú leið að fella niður ferð ferjunnar á fimmtudögum á tímabilinu frá október og fram í miðjan maí. Í minnisblaði Vegagerðarinnar segir að raunar virðist þess misskilings hafa gætt hjá bæjaryfirvöldum að til stæði að fella niður ferðir ferjunnar á fimmtudögun allt árið um kring.
Í minnisblaðinu segir að fimmtudagsferðin að hausti og vetri hafi verið felld niður þar sem hún sé minnst notuð af öllum ferðum Sæfara á þessu tímabili og að farmflutningar í þeirri ferð séu um 25 prósent af því sem þeir séu á miðvikumdögum.
Aflinn
Grímseyingar hafa ekki síst gagnrýnt niðurfellingu finmtudagsferðarinnar á þeim forsendum að hún geri þeim erfiðara fyrir að koma fiskinum sem þeir veiði til söluaðila á fastalandinu. Vegagerðin andmælir þessu hins vegar og segir að samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hafi aflað sér, sé ekki talið nauðsynlegt að afli frá Grímsey fari í land á fimmtudögum. Vísar Vegagerðin einnig til að fjöldi íbúa sem hafi vetrarsetu í eyjunni sé innan við fimmtán manns en auk ferjunnar sé flogið þrisvar sinnum í viku til Grímseyjar. Hins vegar er í þessu samhengi ekki minnst á möguleg áhrif slíkrar þjónustuskerðingar á fjölda þeirra sem kjósa að búa í Grímsey allt árið um kring og að flug sé dýrara en sigling með ferjunni.
Vegagerðin segir þó að helsta ástæða þess að ekki sé mögulegt að draga þessa fækkun ferða Sæfara til baka sé að fyrir liggi að málaflokkur almenningssamgangna sé undirfjármagnaður á fjárlögum og í ífjármálaáætlun pg þar sé gert ráð fyrir frekri skerðingu á fjárframlögum til almenningssamgangna á komandi árum. Þess er hins vegar ekki getið sérstaklega í minnisblaðinu að sá niðurskurður á bara við um almenningssamgöngur á landsbyggðinni en ekki höfuðborgarsvæðinu.
Mótmæli
Bæjarráð Akureyrar fjallaði um fækkun ferða Sæfara á fundi sínum á miðvikudag og allir fulltrúar í ráðinu sammæltust um að mótmæla því harðlega að ekki stæði til að verða við því að draga þessa fækkun ferða til baka.
Segir bæjarráð að við mat á samgönguþörf Grímseyjar þurfi að horfa heildstætt til íbúa, atvinnulífs, þjónustuþarfa og vaxandi fjölda ferðamanna yfir vetrartímann, en ekki eingöngu til gagna um flutning afla og fjölda þeirra sem hafi vetrarsetu í eyjunni.
Bæjarráð segist furða sig á þeim orðum í minnisblaðinu að vísa til frekari skerðingar á fjárframlögum til almenningssamgangna á komandi árum. Slík framsetning kalli á skýr svör um hvað það þýði fyrir brothættar byggðir sem reiði sig á öruggar og reglubundnar samgöngur fyrir grunnþjónustu og atvinnulíf. Bæjarráð felur bæjarstjóra að kalla eftir nánari upplýsingum um þetta og vísar jafnframt minnisblaði Vegagerðarinnar til umræðu í hverfisráði Grímseyjar.