Stjórn Hafnarsjóðs Norðurþings hafnaði í dag kröfum frá þremur hvalaskoðunarfyrirtækjum um endurgreiðslu vegna ofgreiddra farþegagjalda. Kröfurnar námu ríflega 128 milljónum króna en þegar hafði hafnarsjóðurinn greitt Gentle Giants kröfu upp á 36 milljónir króna sem endaði fyrir dómstólum þar sem fyrirtækið hafði betur gegn hafnarsjóðnum.
Það var í október sem Landsréttur dæmdi Gentle Giants í vil í máli þeirra gegn Hafnarsjóði Norðurþings. Málið snýr að því að hvalaskoðunarfyrirtæki telja farþegagjöld sem þau hafa verið rukkuð um um árabil séu ólögmæt. Farþegagjöld tíðkist þegar farþegar eru fluttir frá einum stað til annars en ekki þegar upphafs og endapunktur er sá sami. Þessu er Hafnarsjóðurinn ekki sammála og telji eðlilegt að rukka þessi gjöld þar sem kostnaður liggur að baki m.a. flotbryggjum og annarri þjónustu sem hvalaskoðunarfyrirtækin njóta.
Hafnarsjóðurinn hefur greitt kröfuna frá því í dómsmálinu og eftir að Landsréttur kvað upp dóm sinn komu önnur fyrirtæki, sem greitt höfðu þessi gjöld og kröfðust endurgreiðslu. Talið var að Hafnarsjóðurinn myndi greiða þessar kröfur og hafði Byggðarráð Norðurþings frestað framkvæmdum á árinu sökum endurgreiðslnanna.
Nú virðist hins vegar vera allt útlit fyrir að Hafnarsjóðurinn muni ekki greiða þessar kröfur. Í samtali við fréttastofu sagði Eiður Pétursson, formaður stjórnar Hafnarsjóðs Norðurþings, að auðvitað væri hætta á að hin fyrirtækin færu með málið fyrir dómstóla en var þó bjartsýnn á að þeir gætu samið um lausn áður en til þess kæmi. Fundur milli deiluaðila er á dagskrá á fimmtudaginn.