Hafa brotið gegn vopnahlé og hertekið meira af Gasasvæðinu
Ísraelsmenn hafa haldið áfram að taka yfir land á Gasasvæðinu í andstöðu við ákvæði vopnahlésins sem Donald Trump tilkynnti síðasta haust.
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, segir að ísraelski herinn ráði nú yfir 60 prósentum af Gasasvæðinu, sem bendir til þess að hersveitir hafi farið inn á stærra svæði á landsvæði Palestínumanna en gert var ráð fyrir í vopnahlésáætlun frá því í október.
Ummæli hans koma á sama tíma og daglegt ofbeldi heldur áfram að hrjá íbúa Gasa og tilraunir til að koma á viðkvæmu vopnahléi og binda enda á stríðið fyrir fullt og allt virðast hafa stöðvast.
„Undanfarin tvö ár höfum við sýnt öllum heiminum hversu voldugur kraftur býr í þjóð okkar, ríki okkar, her okkar og arfleifð,“ sagði Netanyahu í gær á viðburði í tilefni af Jerúsalem-deginum.
„Við komum öllum gíslum okkar heim, allt til þess síðasta,“ bætti hann við og vísaði til eins helsta yfirlýsta markmiðs stríðsins á Gasa. „Sumir sögðu: Farið út, farið út! Við fórum ekki út. Í dag stjórnum við 60 prósentum, á morgun sjáum við til.“
Samkvæmt skilmálum vopnahlésins milli Ísraels og Hamas, sem Bandaríkin miðluðu og hefur verið í gildi síðan í október, áttu ísraelskar hersveitir að hörfa að svokallaðri „gulu línu“ á Gasa og halda þannig yfirráðum yfir meira en 50 prósentum af landsvæði Palestínumanna.
Ummæli Netanyahu voru fyrsta opinbera vísbendingin um að herinn væri að auka viðveru sína eftir fréttir í fjölmiðlum undanfarnar vikur um að ísraelskar hersveitir væru að færa sig að nýrri svokallaðri „appelsínugulri línu“.
Í fyrsta áfanga vopnahlésins var síðustu gíslunum, sem teknir voru í árásum Hamas á Ísrael 7. október 2023 og komu stríðinu á Gasa af stað, sleppt í skiptum fyrir Palestínumenn í haldi Ísraels.
Annar áfanginn snýst um þau erfiðu mál sem varða afvopnun Hamas og stigvaxandi brotthvarf ísraelska hersins af Gasasvæðinu.
Þar sem lítill árangur hefur náðst í átt að þessum markmiðum í yfirstandandi viðræðum milli Hamas og sáttasemjara hafa ísraelskir fjölmiðlar greint frá því að ef Hamas neiti að afvopnast sé herinn að búa sig undir að hefja bardaga á Gasa að nýju.
Netanyahu hefur gefið í skyn við ýmis tækifæri að Ísrael muni „ljúka verkinu“ ef palestínsku íslamistahreyfingin afvopnast ekki.
Meira en 850 Palestínumenn hafa fallið frá því að vopnahléið hófst, að sögn heilbrigðisráðuneytisins á Gasa, sem starfar undir stjórn Hamas og tölur þess eru taldar áreiðanlegar af Sameinuðu þjóðunum.
Á sama tímabili sagði ísraelski herinn að fimm hermenn hefðu fallið á Gasa.
Þetta er ekki eina víglínan þar sem Ísrael stundar umdeilt athæfi með eyðingu byggða og drápum á almennum borgurum. Mannúðarsamtökin Amnesty International segja Ísrael hafa framið stríðsglæp með því að eyðileggja heimili fólks í suðurhluta Sýrlands. Í gær var palestínskur táningur drepinn á Vesturbakkanum. Og í Líbanon létust 8 börn í loftárásum í fyrradag, en þar hefur Ísrael eytt byggð í nágrenni landamæra ríkjanna. Yfir fjögur hundruð manns hafa látist í Líbanon í átökum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um vopnahlé og yfir 10 þúsund heimili skemmst, en bæði Ísraelsher og Hezbollah-samtökin hafa haldið áfram hernaði.