Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Ný finnsk rannsókn sýnir að kynþroskablokkar og hormónameðferð eykur enn frekar á vanlíðan barna og ungmenna. Eftir slíka meðferð þurfa þau meiri hjálp vegna geðrænna kvilla en áður.
Sumar hugmyndir eru svo brjálæðislegar að þær átti aldrei að prófa. Enginn dýragarðsvörður myndi nokkurn tíma leyfa að ljónabúr yrði opnað meðal gesta, bara til að prófa hlýðni ljónsins.
Nú hefur vísindamönnum í Finnlandi tekist að staðfesta það sem allir vissu; að segja börnum að þau séu fædd í röngum líkama bætir ekki andlega heilsu þeirra. Þvert á móti.
Vísindagrein
Nýleg grein, sem birtist í Acta Paediatrica skoðaði niðurstöður 2.083 sjúklinga sem vísað var til kynklíníka á árunum 1996 til 2019 og bar þá saman við stóran og vandlega valinn samanburðarhóp. Rannsakendurnir fundu aukna áhættu á ,,geðsjúkdómum, með áhættuhlutföllum um það bil þrisvar sinnum hærri en hjá konum og fimm sinnum hærri en hjá körlum".
Þetta þýðir að stúlkur og ungar konur sem fengu testósterón og drengir og ungir karlar sem fengu estrógen fundu fyrir verulegri aukningu á vanlíðan eftir að hafa byrjað á ,,kynstaðfestandi" meðferð.
Kom engum á óvart
Það sem vísindamennirnir segja í rannsókninni kom engum á óvart. Það vita allir sem fylgjast með málaflokknum. Cass skýrslan sagði það sama.
Cass hafði rétt fyrir sér varðandi skort á sönnunargögnum. En skortur á sönnunargögnum gefur engum leyfi til að framkvæma tilraunir á börnum. Nú hafa gögn borist frá Finnlandi og þau benda nákvæmlega í þá átt sem almenn skynsemi segir.
Neita staðreyndum
Það kemur ekki á óvart að trans- aðgerðasinnar neiti staðreyndum og vísindalegum göngum. Vald þeirra, og oft sjálfsmyndin, byggist á skuldbindingu þeirra við kynja- og trans hugmyndafræðina. Sannleikanum sópað undir teppi, jafnvel þó það kosti börn og ungmenni geðheilsuna.
Heilbrigðisráðuneytið á hins vegar að svara sönnunargögnum. Það á bæ hafa menn fræðimenn sem kunna að lesa í vísindi.
Nú stendur ráðuneytið frammi fyrir vali: að yfirgefa misheppnað líkan eða halda áfram óþarfa tilraunum á börnum til að friða kynjaöfgamenn.
Finnska rannsóknin verður að marka endalok leiðarinnar fyrir gerræðislegar tilraunir á börnum og hættulegan skáldskap um kynstaðfestandi umönnun í öllum löndum.
Heimild: The dangers of ‘gender-affirming care’ are now undeniable - spiked