Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa - Vísir
22.04.2026 07:45:14👁️ 0 lesið
Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir að á meðan Rússar sprengja upp söfn, rústa kirkjum og reyna að þurrka út úkraínska menningu eigi þeir ekki að fá að sýna eigin menningu, að því er kemur fram í frétt Politico.„Endurkoma Rússlands á Feneyjatvíæringin er siðferðislega röng og ESB ætlar að hætta fjárveitingum sínum,“ sagði Kallas eftir fund utanríkisráðherra aðildarríkjanna í gær.
Nokkur ríki hafa hótað því að sniðganga listahátiðina ef Rússar fá að taka þátt. Íslensk stjórnvöld eru á meðal þeirra sem hafa skorað á skipuleggjendur hátíðarinnar að endurskoða þátttöku Rússa.Skipuleggjendurnir bera því við að þeir haldi list og pólitík aðskildri og að hátíðin sé opin umræðuvettvangur.Ásta Fanney Sigurðardóttir, gjörningalistamaður, er fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum sem á að hefjast 9. maí.