Dægurmiðillinn People greinir frá þessu og segir að nokkrir mánuðir séu frá því að þau fóru í sundur. Þau styðji þó við bakið á hvort öðru og vilji allt það besta fyrir hvort annað.
Sambandið vakti mikið umtal á sínum tíma þar sem að Slater var nýbúinn að eignast barn með þáverandi eiginkonu sinni, sálfræðingnum Lilly Jay. Jay skrifaði síðar opinn og einlægan pistil um sorgina sem hún gekk í gegnum þegar Slater fór frá henni og hvernig það væri að vera með nýfætt barn í skugga sambands hans með heimsfrægri stjörnu.
Ethan Slater er 34 ára gamall en Ariana 32 ára. Samkvæmt heimildum People er Ariana á góðum stað og var að hefja tónleikaferðalag um allan heim fyrir plötu sína Eternal sunshine.