„Pólitískt grín, eins og Spaugstofan gerði í hverri viku, er nauðsynlegt,“ segir grínistinn Kjartan Logi Sigurjónsson í Dagmálum Morgunblaðsins í dag en hann hefur gert góða hluti með grínsketsum á samfélagsmiðlum.
Hann segir samfélagsmiðla vera góðan vettvang fyrir ungt fólk til að fylgjast með stjórnmálaumræðunni í landinu og að oft megi nota grín til að takast á við alvarleg málefni.
Þörf umræða
„Ég held að þetta geti algerlega verið vettvangurinn fyrir þetta, ég er að gera grín en þið vitið samt hvað ég er að tala um. Það þarf ekkert að vera of mikil alvara á bak við það en þetta er líka þörf umræða,“ segir Kjartan.
Hann segir að fyndið sé að fylgjast með samfélagsmiðlum stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga.
„Svo eru bara kosningarnar búnar og það heyrist ekkert frá þeim.“
Þá segir hann að flokkar megi nota miðlana meira utan kosningabaráttunnar.