Gæslan opnaði dyrnar á flugskýli sínu á Reykjavíkurflugvelli nú klukkan tólf og verður tekið á móti gestum til klukkan fjögur í dag.
Þar verður hægt að skoða margvíslegan búnað gæslunnar en að sögn Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar eru tólf ár síðan almenningi gafst færi á að heimsækja gæsluna síðast.
„Fólk það fær bara að komast algjörlega upp að og maður sér það að fólki finnst gaman að sjá þessi tæki. Hvort sem það eru þyrlurnar eða flugvélin, eða sprengjuleitarróbótinn eða köfunargræjunar eða sjókortin í raun og veru. Við búum svo vel að þetta eru spennandi hlutir,“ sagði Ásgeir í samtali við fréttastofu.
„Fólki finnst vænt um Landhelgisgæsluna“
Landhelgisgæslan fagnar hundrað ára afmæli í ár og hefur staðið fyrir ýmsum viðburðum á afmælisárinu. Hafa skólabörn sem og almenningur meðal annars fengið tækifæri til að skoða varðskipin þegar þau liggja við bryggju.
Ásgeir segir að gæslan hafi fundið að almenningur hefur áhuga á starfseminni.
„Við höfum fundið það í þessum heimsóknum þar sem er verið að bjóða þjóðinni um borð í skipin okkar og við finnum líka fyrir miklum velvilja. Fólki finnst vænt um Landhelgisgæsluna og þess vegna viljum við bjóða fólki í heimsókn og koma og skoða og sjá.“
Klár ef það kemur útkall
Eðli málsins eru ekki mörg tækifæri fyrir gæsluna að bjóða almenningi í heimsókn. slíkt krefjist mikillar skipulagningar.
Til dæmis ef til útkalls kæmi.
„Þá erum við með aðra þyrluna okkar þannig staðsetta að við verðum fljót að bregðast við. Þannig við erum í raun búin að plana fyrir öllu þegar kemur að þessari heimsókn.“