Hæglætis veður verður víðast hvar á landinu í dag og á morgun. Austlæg eða breytileg vindátt verður ríkjandi. Vindhraði á bilinu 3 til 10 metrar á sekúndu og skýjað með köflum.
Smáskúrir á stöku stað en léttskýjað á Norðurlandi eystra. Seint á morgun þykknar svo upp með lítilsháttar súld austan- og norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 4 til 14 stig og svalast við austurströndina.