Á fundi Flugmálafélags Íslands fyrir helgi með frambjóðendum flokkanna í Reykjavík flutti Karl Alvarsson erindi. Hann er ráðherraskipaður formaður fagráðs um flugmál sem tók við hlutverki flugráðs.
Karl sagði að yfirstandandi deilur um starfsleyfi Reykjavíkurflugvallar hefðu komið til skoðunar hjá fagráðinu. Þá hafi komið í ljós að valdheimildir heilbrigðiseftirlita á Íslandi byggi að mestu leyti á fjölmörgum tilskipunum Evrópusambandsins varðandi mengun frá iðnaði.
„Það sérstaka við allar þessar tilskipanir og trúið mér, það er mökkur af þeim, að þar er hvergi minnst á flugvelli í þeim tilskipunum. Og samkvæmt upplýsingum fagráðsins er enginn flugvöllur í Evrópu háður starfsleyfi á grundvelli þessara gerða,“ sagði Karl.
Enda væru flugvellir á Evrópska efnahagssvæðinu almennt vottaðir af eftirlitsstofnunum á sviði flugmála á grundvelli samræmdra EES-reglna og Samgöngustofa fari með þau mál á Íslandi.
„Starfsleyfisskyldan fyrir flugvelli hérna á Íslandi er þá skýrt dæmi um séríslenska gullhúðun á EES-reglum,“ sagði Karl.
Segir heilbrigðiseftirlitið fara langt út fyrir valdheimildir
Áður var á fundinum búið að rekja deilur fluggeirans við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um nýjar íþyngjandi kvaðir í drögum að starfsleyfi flugvallarins sem Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins, lýsti sem dauðadómi yfir stórum hluta af starfsemi vallarins.
„Okkur sem að þessum málum koma virðist ljóst að eftirlitið hafi farið langt út fyrir þær valdheimildir, sem þeir hafa, í drögum að starfsleyfinu,“ sagði Karl og bætti við:
„Ég held að það sé alveg ljóst að hvorki borgarráð, borgarstjórn né Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fer með þær valdheimildir sem gera þeim kleift að stöðva eða takmarka lendingar loftfara á Reykjavíkurflugvelli. Þær valdheimildir liggja hjá öðrum stofnunum ríkisins,“ sagði Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál, á fundi Flugmálafélagsins, en hér má hlýða á hádegisfrétt Bylgjunnar um málið: