Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suðurlandi og við Faxaflóa vegna suðaustan hvassviðris síðla nætur og í fyrramálið.
Útlit er fyrir 13 til 20 metra á sekúndu og rigningu. Vindur gæti farið yfir 30 metra á sekúndu í hviðum við fjöll. Veðurstofan bendir á að veðrið geti orðið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Viðvörunin við Faxaflóa tekur gildi klukkan þrjú í nótt og fellur úr gildi klukkan níu í fyrramálið. Viðvörunin á Suðurlandi stendur skemur yfir, frá fjögur í nótt til átta í fyrramálið.