Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Guðjón lauk B.S. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands (HÍ) árið 2006, meistaragráðu frá Boston University School of Public Health á sviði rannsókna tengdum heilbrigðisþjónustu árið 2012 og meistaragráðu í heilsuhagfræði frá HÍ árið 2015.
Hann er sem stendur forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands og hefur gegnt því embætti frá árin 2017 en var áður deildarstjóri sjúkradeildar við sömu stofnun í fjögur ár. Guðjón hefur einnig starfað sem sérfræðingur hjá Lyfjagreiðslunefnd, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og sem verkefnastjóri og hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum.
„Eins og fram kemur í áliti hæfnisnefndar hefur Guðjón öðlast mjög breiða þekkingu á heilbrigðiskerfinu í störfum sínum. Sem forstjóri HSA í nærri áratug hefur hann einnig mikla þekkingu og reynslu af áætlanagerð og fjármálum hins opinbera og á sviði mannauðsmála og stjórnsýslu,“ segir í tilkynningunni.
Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands verður auglýst til umsóknar á næstunni.