Miklir gróðureldar hafa geisað í norður Portúgal síðan á miðvikudag. Að minnsta kosti níu eru slasaði af völdum eldanna, þar af tveir alvarlega. Eldurinn kom upp í sveitarfélaginu Vouzela og hefur breiðst hratt út á yfir 10.000 hektara svæði nú þegar.
Yfir eitt þúsund slökkviliðsmenn á 300 ökutækjum reyna að slökkva eldana. Átta flugvélar og þyrlur eru einnig nýttar til slökkvistarfs sem er umfangsmikið. Portúgalska veðurstofan hefur varað við því að hitinn gæti farið upp í 44 gráður á sumum svæðum um helgina og rauðar veðurviðvaranir vegna hita eru í gildi í 10 af 18 héruðum landsins.
Yfirvöld hafa óskað eftir auknum liðsauka frá Spáni, Marokkó og evrópskum almannavörnum til að slökkva gróðureldana. Forsætisráðherra Portúgals, Luis Montenegro, sagði að allt landsvæðið væri í mjög mikilli hættu vegna gróðureldanna og því hefði verið óskað eftir liðsauka.
Gróðureldar kvikna á hverju ári í Portúgal og valda oft miklu tjóni, bæði manntjóni og á gróðri. Yfir hundrað manns fórust í miklum gróðureldum í landinu árið 2017.
Eldar nærri Costa Brava á Spáni
Gróðureldar loguðu einnig nærri Costa Brava-ströndinni á Spáni í gær. Yfir tvö hundruð slökkviliðsmenn börðust við eldinn sem kom fyrst upp í La Bisbal D-Emporda, sem er í um 20 kílómetra fjarlægð frá þessari vinsælu ferðamannaströnd.
Eldarnir breiddust hratt út vegna mikilla og þurrra vinda á svæðinu og hafa brunnið á um 1.280 hektara svæði. Yfirvöld í Katalóníu hafa beðið íbúa í tíu sveitarfélögum að halda sig heimavið. Búið er að flytja burt um 150 einstaklinga, þar á meðal 70 börn sem voru í sumarbúðum.
Lögreglan í Katalóníu hefur handtekið mann sem er grunaður um að hafa komið gróðureldunum af stað þegar hann var að nota slípirokk í vegkanti.
Spánverjar eru ekki alls ókunnugir gróðureldum frekar en Portúgalar. Á síðasta ári voru miklir gróðureldar sem læstu sig í um 400.000 hektara lands, sem eru einir mestu gróðureldar sem hafa geisað í landinu.