Hreindýraveiðimaður varð uppvís að því að veiða tarf í síðustu viku án hreindýraleiðsögumanns. Austurfrétt greindi fyrst frá.
„Við fengum ábendingar um að það væru veiðilegir menn hér á einu veiðisvæði,“ segir Jóhann G. Gunnarsson sérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun.
Eftirlitsmaður fór af stað og fann bíl mannanna í Berufirði.
„Þá kom í ljós að þar var kjöt í bílnum af hreindýrstarfi. Þá spyr hann viðkomandi um aðstæður og leyfi og slíkt. Þarna var að vísu maður sem átti hreindýraleyfi fyrir tarfi en þarna var enginn leiðsögumaður með í för,“ segir Jóhann.
Veiðar eru ólöglegar án hreindýraleiðsögumanns og athæfið var tilkynnt til lögreglu. Jóhann segir að sá hátturinn hafi verið á síðustu þrjá áratugi.
„Það á enginn að fara á hreindýraveiðar án þess að hafa með sér leiðsögumann sem hefur hlotið réttindi sem slíkur frá stofnuninni.“
Rannsókn langt komin
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, segir málið hafa verið skoðað eftir tilkynningu frá Náttúruverndarstofnun. „Málið fer til rannsóknar og er langt komið í rannsókn núna. [Það er] einn aðili með stöðu sakbornings.“
Viðurlög við veiðum án leiðsögumanns geta verið sektir, upptaka kjöts og möguleg afturköllun skotvopnaleyfis.
Kristján Ólafur segir að svona brot séu ekki algeng. Hann minnist þess ekki að mál sem þetta hafi ratað á borð lögreglu áður. „Sem betur fer hefur þetta ekki komið oft upp og vonandi er þetta einstakt tilvik,“ segir hann.