Kristjana Steingrímsdóttir, eða Jana eins og hún er jafnan kölluð, er heilsukokkur með næmt auga fyrir bragði, litum og næringu. Hún hefur löngum vakið athygli fyrir skapandi hráfæðisuppskriftir sínar, en kann ekki síður til verka þegar kemur að glæsilegum kjötréttum sem henta jafnt hversdags og fyrir veislur.
Nú deilir hún girnilegri uppskrift að grilluðum lambahryggvöðva, rétti sem sameinar fágaðan einfaldleika og kraftmikið bragð á þann hátt sem fær bragðlaukana til að taka við sér.
„Ég er sífellt að prófa mig áfram í eldhúsinu og þróa nýjar uppskriftir,“ segir Jana og bætir við að hún vonist til að sem flestir fái notið þeirrar ástríðu sem hún leggur í matargerðina. Hún hefur sent frá sér matreiðslubók og heldur einnig úti heimasíðu með fjölbreyttu og girnilegu efni sem vert er að gefa gaum.
Grillaður lambahryggvöðvi sem enginn stenst
Grillaður lambahryggvöðvi með kryddjurtapestói
- 750 g lambahryggvöðvi (lambafillet)
Kryddjurtapestó
- 1 og 1/2 dl ólífuolía
- 1 búnt fersk basilíka (u.þ.b. 20 g)
- 1/2 búnt fersk steinselja (u.þ.b. 10 g)
- 1/2 búnt ferskt tímían (u.þ.b. 10 g)
- 1/2 búnt fersk mynta (u.þ.b. 10 g)
- 2 msk. léttristaðar kasjúhnetur
- Safi og börkur úr 1/2 sítrónu
- 1 msk. hunang
- 1/2 tsk. pipar
- 1 tsk. salt
Aðferð
- Setjið allt hráefni fyrir kryddjurtapestóið í matvinnsluvél og maukið vel.
- Setjið um það bil 3 msk. af pestói á kjötið og látið marinerast í um það bil 1 klukkustund.
- Grillið kjötið á heitu grilli í 2-3 mín. á hvorri hlið eða aðeins lengur ef þið viljið hafa það meira eldað.
- Berið lambið fram með grilluðu graskerssalati og mangósalsa og það sem eftir er af pestóinu.

