Í ákæru á hendur Katsanos, sem gefin var út þann 5. júní, segir að hann sé ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 27. mars 2026, staðið að innflutningi á samtals 42,9 kílóum af kókaíni með styrkleika 83 til 85 prósent, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni.
Fíkniefnin hafi verið falin í bifreiðinni MK I3796, sem Katsanos flutti frá Danmörku með viðkomu í Færeyjum og hingað til lands með farþegaferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar. Lögregla hafi fundið og lagt hald á umrædd fíkniefni við leit undir fölsku gólfi í farmrými bifreiðarinnar.