Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir
Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu - Vísir
📅 2026-04-21 00:17:29👁️ 6 lesið
Þetta er meðal þess sem Steinunn sagði í viðtali á Rauða borðinu á Samstöðinni sem birt var á netinu fyrr í kvöld. Þar ræddi hún Ólínuskjölin, aðdraganda þeirra, ofbeldi sem hún varð fyrir sem barn og ýmislegt annað. Í hlaðvarpinu fjallar Steinunn tæpitungulaust um reynslu sína en hún segir markmiðið fyrst og fremst að „vinna úr eigin reynslu og mögulega hjálpa öðrum sem kunna að hafa lent í erfiðum aðstæðum að finna kjark til að segja sína sögu.“Steinunn rekur í viðtalinu þá ákvörðun sína að opna á Ólínuskjölin til tiltekins atburðar. Þessi hugmynd hafi ekki verið til fyrir nokkrum vikum. Hún hafi lengi barist gegn sjókvíaeldi en hún hafi nýverið séð mynd af manni sem nauðgaði sér á árum áður í auglýsingu samtaka fyrir náttúruvernd.„Ég fór algerlega á límingunum yfir þessu,“ segir Ólína. Nokkrum dögum síðar hafi hún hitt vinkonu sína og rætt við hana um verkefni sem hún hafði nýverið tekið að sér til að gera um næstu jól, með henni. Steinunni hlakkaði mikið til þessa verkefnis en vinkonan sagði henni að umræddur maður ætti einnig að taka þátt í því.Hún segir manninn hafa ráðist fyrirvaralaust á sig eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu, fyrir um tuttugu og fimm til þrjátíu árum síðan, og hann hafi nauðgað henni, staðið upp, girt sig og brosað til hennar.
„Þetta var maður sem ég var búinn að þekkja frá því ég var lítil stúlka og þetta varð mér mikið áfall. Mér varð svo brugðið.“
Viðtalið við Ólínu má sjá í spilaranum hér að neðan. Hún segist hafa farið á fund þáverandi þjóðleikhússtjóra, Stefáns Baldurssonar, og sagði hann hafa brugðist rétt við.„Hann sagði við mig: „Hvað viltu gera Steinunn? Viltu kæra eða viltu hvað?“ og ég sagði: „Neinei, ég ætla bara að tala við manninn“. Sem ég og gerði.“Hún segir manninn hafa beðið sig fyrirgefningar og þau hafi sæst.
„Að ég hélt. Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta og þetta yrði ekkert mál.“
Steinunn segir að hún hafi nýverið skrifað þessum manni og beðið hann um að víkja frá áðurnefndu verkefni. Hún hefði áður sagt sig frá verkefnum sem hann kæmi að, þar sem hún kærði sig ekki um að vera í hans návist.„Stundum hefur það verið þannig að hann hefur verið þar, án þess að ég hafi vitað af því, og ég hef alveg umberið það. En nú er ég hætt að bjóða mér upp á slíkt. Ég er bara orðin fullorðin og nenni ekki lengur að vera í félagsskap við fólk sem ber enga virðingu fyrir öðrum.“
Blá og marin
Steinunn segir manninn ekki hafa brugðist vel við beiðninni og gefið til kynna að hann þyrfti á starfinu að halda.„Síðan svaraði hann mér með þessari klassísku setningu, sem er núna búið að stimpla inn í íslenska orðræðu. Svona orðalag sem þýðir ekki neitt og er særandi fyrir þá sem þola og gefur geranda eða þeim sem vill standa með geranda ákveðið niðurlægingarvald. Af því hann endar bréf sitt til mín með orðunum: „Mér þykir leiðinlegt að þetta hafi verið upplifun þín“.“Steinunn segir hann vita að hún hafi farið til þjóðleikhússtjóra á sínum tíma, að þau hafi átt samtal og að hún hafi verið blá og marin við hann.
„Um það vitnar mitt fjölskyldufólk, sem tók á móti mér þegar ég kom heim eftir þetta atvik, að ég hafi barist við manninn.“
Hún segist hafa svarað til baka og sagt manninum að hann réði því hvað hann gerði, hvort hann virti óskir hennar eða ekki. Síðan hafi hún skrifað honum lýsingu á því sem hefði gerst, minnt hann á að hún hefði farið til þjóðleikhússtjóra og sagt öllum í leikhúsinu frá þessu.Steinunn segist hafa látið vita af þessu af því að hún hafi viljað vara aðra við. Hún hafi þó borið virðingu fyrir manninum og þekkt hann lengi og því hafi hún ekki viljað eyðileggja líf hans.Eftir það lokaði maðurinn á frekari samskipti milli þeirra og segist Ólína þá hafa tekið þá ákvörðun að leysa frá skjóðunni.
„Nú er ég búinn að vera að bera blak af vesalingum, vera skálkum skjól frá því ég var fjögurra ára gömul og veistu ég bara nenni þessu ekki lengur.“
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkraínskur varnarmálaráðherra segir tenginguna nú stöðuga. Elon Musk segir að her landsins...
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjaldbúðir hafa risið í Lissabon og Porto undanfarnar vikur vegna húsnæðisverðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til r...
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann seg...
Mikið óveður hefur gengið yfir Suður-Noreg í dag en stormurinn Boelo hefur valdið mikilli rigningu og hvassviðri.Þúsundir heimila eru án rafmagns, tré...
Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunna...
Vindorkugarðar áformaðir víða um land Fyrsta vindorkuverið á Íslandi hefur verið gangsett og fleiri eru áformuð. Yfir fjörutíu hugmyndir eru um v...
Kjörsókn hefur verið mikil í Serbíu en þar fara þingkosningar fram í dag.Fyrrum forseti landsins, Aleksandar Vucic, rauf þing í september og boðaði ti...
Five people have been injured when their sailing yacht ran aground near Órzola harbour in northern Lanzarote this morning, Sunday, leaving four of the...
Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru he...
Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða ...