Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt drög að samkomulagi um greiðslu skaðabóta til eigenda tveggja búslóða sem starfsfólk bæjarins henti í fyrra. Tillögurnar eiga enn eftir að fá afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fyrr á árinu leituðu tveir íbúar bæjarins sér lögfræðiaðstoðar eftir að búslóðir þeirra voru fjarlægðar úr geymslum á Ásbrú og þeim ýmist hent eða komið til nytjamarkaðar. Reykjanesbær hefur nú boðist til að greiða skaðabætur og lögfræðikostnað íbúanna tveggja.
Útlit fyrir fimm milljónir í skaðabætur
Kristín Dögg Josézinho Guðmundsdóttir er stjúpmóðir ungrar konu sem missti alla búslóð sína í tiltekt bæjarins. Hún segir bæinn hafa boðið stjúpdóttur sinni rúmlega fimm milljónir í skaðabætur, þar af um hálfa milljón í lögfræðikostnað.
„Hún reyndar fór fram á sex milljónir í heildina fyrir bara tjónið á eignum. En þetta er það sem þeir buðu. Þeir buðu fyrst lægra, hún gerði móttilboð og þeir samþykktu það og hún ætlar sem sagt að taka þessu. Ef við færum fyrir dóm, þá vitum við ekki hvernig það færi og þetta er betra en ekkert,“ segir Kristín.
Talsvert tilfinningalegt tjón
Kristín segir þær stjúpmæðgur líta á þetta sem farsæla lausn, verði þetta lokaniðurstaðan.
„Þetta er allavega hluti af tjóninu sem er bættur. Þetta var líka mikið tilfinningalegt tjón sem hún varð fyrir. Það voru þarna persónulegir hlutir. Eins og ég segi, þetta er betra en ekkert.“
Vonandi hægt að klára málið fljótlega
Í svörum frá bænum segir að með gerð samkomulagsins sé bærinn ekki að viðurkenna að hann hafi verið í órétti. Tillögurnar eiga enn eftir að fá afgreiðslu í bæjarstjórn eins og áður hefur verið nefnt.
Í svörum bæjarins segir að sveitarfélagið hafi lýst sig viljugt, hvernig svo sem á ábyrgð væri litið, til að leysa málið. Vonir séu bundnar við að allir geti fellt sig við tillögur bæjarins og að málið verði klárað fljótlega.