Gönguljósin á Miklu­braut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? - Vísir

Gönguljósin á Miklu­braut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? - Vísir

Gönguljósin á Miklu­braut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? - Vísir

Atli Björn Levý, samgönguverkfræðingur og forstöðumaður verkefnastofu Betri samgangna, segir í hlaðvarpi Vísis að lausnirnar séu þó ekki alltaf jafn einfaldar og þær virðast við fyrstu sýn.

Kallað sé eftir skjótum framkvæmdum sem eigi að leysa tiltekna flöskuhálsa. Vandinn sé hins vegar sjaldnast einangraður við eitt ljós, ein gatnamót eða eina beygju.

Af hverju er beðið eftir stóru lausninni?

Gönguljós á Miklubraut hafa lengi farið í taugarnar á mörgum ökumönnum, ekki síst þegar umferð stöðvast til að hleypa einum eða fáum gangandi vegfarendum yfir götuna. Í umræðunni hefur reglulega verið spurt hvers vegna ekki sé að minnsta kosti ráðist í tímabundna lausn, til dæmis göngubrú, á meðan beðið er eftir stærri framkvæmdum við Miklubraut.

Umferð um Miklubraut fer daglega um miðja borgarbyggðina þar sem gangandi vegfarendur þurfa að þvera eina fjölförnustu götu Reykjavíkur á ljósum. Deilt er um hvort leysa eigi vandann strax með bráðabirgðaaðgerðum eða bíða eftir miklu stærri framkvæmd við götuna.Vilhelm

Þar liggur einmitt kjarni gagnrýninnar. Fólk upplifir að það megi ekkert gera á þessum kafla vegna þess að alltaf sé vísað í stærri lausn sem sé væntanleg síðar; Miklabraut fari á endanum í stokk eða jarðgöng og þá leysist vandinn. Sú framkvæmd er hins vegar ekki handan við hornið. Vegagerðin hefur metið framkvæmdatíma stokks eða jarðganga á bilinu fjögur til fimm ár og verkefnið hefur enn verið á undirbúnings- og hönnunarstigi.

Gagnrýnina má orða svipað og með leka í húsi: Ef gluggi lekur í dag er erfitt að segja við íbúann að ekkert verði gert, vegna þess að til standi að fara í heildarendurbætur á húsinu eftir nokkur ár. Spurningin er því hvort eðlilegt sé að bíða árum saman eftir stóru lausninni án þess að ráðast í neinar minni úrbætur á meðan.

Atli Björn Levý segir þó að göngubrú sé ekki hlutlaus eða einföld bráðabirgðalausn. Með henni sé í raun verið að ákveða að gangandi og hjólandi eigi að víkja fyrir bílaumferðinni.

„Þú nefnir brú. Þar ertu í grunninn að forgangsraða gangandi og hjólandi neðar heldur en bílnum,“ segir Atli.

Hann vísar til þess að í aðalskipulagi og samgönguhugsun sveitarfélaga sé í auknum mæli horft til svokallaðs samgöngupíramída, þar sem gangandi og hjólandi vegfarendur séu settir ofar í forgangsröðina en einkabíllinn.

Atli Björn Levý, samgönguverkfræðingur og forstöðumaður verkefnastofu Betri samgangna, segir að lausnir við umferðarhnútum á höfuðborgarsvæðinu verði að taka mið af stærri heildarmynd en einstökum ljósum eða gatnamótum.Vilhelm

„Ef þú skoðar aðalskipulagið þá er þar samgöngupíramídi. Þar ertu að segja að við hugsum um gangandi og hjólandi fyrst,“ segir Atli.

Hann segir einnig að göngubrýr geti lengt leiðir fólks og þar með dregið úr líkum á að fólk noti þær.

„Þú ert að lengja gönguleiðir með því að lyfta þeim upp. Þá ertu líka að fækka þeim sem munu velja mannvirkið. Þannig að hvernig verður í rauninni notkunin?“ segir Atli.

Aðspurður hvort Miklubrautarstokkur eða jarðgöng muni þá leysa vandann á þessum kafla segir Atli að stærri framkvæmdin muni breyta forsendunum verulega. Þá verði Miklabraut ekki lengur sama hindrunin í borgarlandslaginu og hún er í dag.

„Klárlega. Þarna eru tækifæri fyrir okkur til þess að fá verðmætt land og búa til fallegri götu, gönguvænna umhverfi. Þetta er borgarþróunarverkefni,“ segir Atli.

Hann segir að þegar Miklabraut verði komin niður muni yfirborðið fá rólegra yfirbragð og auðveldara verði fyrir gangandi vegfarendur að fara milli hverfa.

„Þarna verður miklu auðveldara að þvera þessa götu, sem verður með miklu rólegra yfirbragði heldur en við erum með í dag,“ segir Atli.

Flöskuháls við Bústaðaveg og Reykjanesbraut

Annar staður sem reglulega er nefndur í umræðu um tafir eru gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Þeim hefur verið lýst sem einum helsta flöskuhálsi höfuðborgarsvæðisins, þar sem miklar tafir myndast á annatímum.

Gagnrýnisraddir hafa spurt hvers vegna ekki sé ráðist í tímabundna mislæga lausn þar, jafnvel þótt stærri breytingar tengdar Borgarlínu og samgöngusáttmála komi síðar til framkvæmda. Rökin séu þau að tafirnar séu svo kostnaðarsamar að slík framkvæmd myndi borga sig margfalt upp.

Gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar eru eitt skýrasta dæmið um umferðartafir sem margir vilja leysa strax, á meðan yfirvöld horfa til stærri heildarlausnar með Borgarlínu og samgöngusáttmála.Vilhelm

Atli segir þó að reynslan sýni að stór og mislæg gatnamót leysi ekki allan vanda, sérstaklega ekki þegar umferðarmagnið sé orðið mjög mikið. Hann bendir á slaufugatnamótin við Vesturlandsveg sem dæmi.

„Þetta er ofboðslega stórt og þau afkasta mjög miklu, en þau afkasta ekki nóg,“ segir Atli.

Hann segir að á slíkum stöðum myndist fléttunarsvæði þar sem bílar þurfi að komast inn á og út af stofnbrautum. Þegar umferðin sé orðin gríðarleg geti slík fléttun sjálf orðið uppspretta tafa.

„Á háannatíma eru um hundrað þúsund bílar á sólarhring í Ártúnsbrekkunni. Þetta er bara á þolmörkum. Þar verða til fléttunarsvæði þar sem straumarnir koma saman og það getur valdið töfum í ýmsar áttir,“ segir Atli.

Slaufunni við Vesturlandsveg ekki hreyft

Atli segir að í undirbúningi samgöngusáttmálans hafi verið tekin ákvörðun um að hreyfa ekki við slaufugatnamótunum við Vesturlandsveg. Það væri einfaldlega of umfangsmikið verkefni.

„Í öllum þessum forsendum samgöngusáttmálans var ákveðið mjög snemma, fyrir 2020 allavega, að það væri það mikið mál að hreyfa við þessari slaufu að við ætlum bara að hafa hana óbreytta,“ segir Atli.

Slaufugatnamótin við Vesturlandsveg afkasta miklu en eru samt á þolmörkum á háannatíma, að sögn Atla Björns Levý.Vilhelm

Í staðinn sé horft til þess að bæta gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar samhliða uppbyggingu öflugs almenningssamgönguáss. Sá ás eigi að tengja Mjódd við Vogabyggð.

„Við ætlum að reyna að laga Reykjanesbraut og Bústaðaveg samhliða því að koma með öflugan ás fyrir almenningssamgöngur. Þetta svæði verður tengt úr Mjóddinni og í Vogabyggðina og þessi gatnamót verða leyst í leiðinni í gegnum það verkefni,“ segir Atli.

Ólíkar lausnir við Kaplakrika

Þá eru gatnamótin við Kaplakrika í Hafnarfirði einnig til skoðunar. Atli segir að þar séu ólíkar sviðsmyndir á borðinu.

Annars vegar sé horft til þess að setja ákveðna punkta í mislæga lausn. Hins vegar sé einnig til skoðunar mun dýrari leið, sem fæli í sér að færa stofnbrautir niður með svipuðum hætti og fyrirhugað er á Miklubraut.

Gatnamótin við Kaplakrika í Hafnarfirði eru til skoðunar í samgöngusáttmálanum. Atli Björn Levý segir að þar komi bæði til greina mislæg gatnamót og mun dýrari lausn þar sem stofnbrautir yrðu færðar niður, en slík framkvæmd gæti haft áhrif á Setbergsvöll.Vilhelm

„Það er verið að skoða mismunandi lausnir, hvort eigi að setja þessa punkta í mislæga lausn eða jafnvel fara í dýrari lausn, sem ekki eru til peningar fyrir ennþá, sem er að fara með stofnbrautirnar niður,“ segir Atli.

Sú útfærsla gæti þó haft áhrif á Setbergsvöll. Atli segir að slík hugmynd þurfi því pólitíska og samfélagslega umræðu áður en lengra verði haldið.

„Þá kemurðu upp á holu þrjú á Setbergsvellinum. Það er eitthvað sem þarf að fá umræðu um og það þarf að láta lofta aðeins um það,“ segir Atli.

Engin einföld töfralausn

Atli segir að umræðan um umferðartafir sé skiljanleg. Fólk upplifi tafirnar daglega og vilji eðlilega sjá skjótari úrbætur. Hann segir þó að stærstu hnútarnir á höfuðborgarsvæðinu verði ekki alltaf leystir með því einu að byggja stærri gatnamót, fleiri akreinar eða brýr yfir einstaka götur.

Ein dýrari sviðsmynd við Kaplakrika felur í sér að færa stofnbrautirnar niður í göng eða stokk við Setberg. Atli Björn Levý segir að slík lausn gæti komið upp við Setbergsvöll og því þurfi að ræða áhrif hennar áður en lengra verði haldið.Vilhelm

Lausnirnar þurfi að taka mið af því hvernig fólk komist um svæðið í heild; akandi, gangandi, hjólandi og með almenningssamgöngum.

Þess vegna geti framkvæmdir sem virðast einfaldar í augum vegfarenda orðið flóknari þegar horft er til skipulags, kostnaðar, landnýtingar og þess hvernig umferðin færist milli staða.

Að mati Atla snýst málið því ekki aðeins um að koma bílum hraðar í gegnum einstök gatnamót heldur um að endurhanna samgöngukerfið þannig að það afkasti betur til lengri tíma.

#bið #bráðalausn #eða #gönguljósin #miklubraut


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262906097d/gonguljosin-a-miklubraut-bradalausn-eda-bid-eftir-stokknum-

📰 Aðrar fréttir

Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
📅 08.10.2026 👁️ 2
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja að þrír óbreyttir borgarar hafi verið drepin og að 36 hafi særst í árásum á tvo alþjóðaflugvelli sem Hútar hafa lýst ábyr...
Virðist ekki muna eftir aftökunni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Virðist ekki muna eftir aftökunni
Lögmaður Christu Pike segir að legið hafi við því að hún yrði tekin úr öndunarvél eftir að hún var lögð inn á spítala og áður en hún komst til meðvitu...
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
Ólétt kona á fimmtugsaldri fannst látin á heimili sínu í Kentucky. Hafði kviður hennar verið ristur upp og fóstrið fjarlægt úr legi hennar.Breska blað...
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði í dag með leiðtogum Færeyja og Grænlands sem eru staddir hér á landi á fyrsta fundi oddvita vestnorrænu...
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar lýstu því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu gert bandalag við aðrar fylkingar í Eþíópíu og saman ætluðu þessar fylki...
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 2
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að kjarasamningum félagsins verði sagt upp á morgun að öllu óbreyttu. Stjórn VR kom saman síðdegis í dag og lauk...
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
📅 07.10.2026 👁️ 2
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
Passengers have described their anger after their itineraries changed to involve hours spent on coach trips instead.
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
📅 07.10.2026 👁️ 2
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
Downing Street said deeper co-operation in the face of rising hybrid threats from Russia would be high on the agenda during Burnham's first official v...
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
📅 07.10.2026 👁️ 2
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
The decision comes after nearly half a million people cast their votes from a shortlist of 18 creatures.
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á ...
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 3
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
Stjórn VR samþykkti einróma í kvöld að slíta kjarasamningum á morgun. Frá þessu greinir Vísir.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skynja vilja...
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í ...
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
📅 07.10.2026 👁️ 3
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
The new charges are expected to accuse Maduro and his wife of playing a role in the torture of Americans in Venezuelan prisons, US media reports.
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
📅 07.10.2026 👁️ 3
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst ó...
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 4
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 4
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 4
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 4
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 4
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
📅 07.10.2026 👁️ 2
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
The US death row inmate's legal team said at a press conference that she is now "conscious and speaking" after her failed execution.
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 4
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 4
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 4
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...