Línuskip Vísis komu bæði með góðan afla til hafnar í Grindavík á síðustu dögum, þrátt fyrir að sumarveiðar séu nú hafnar og aflabrögð almennt farin að dragast saman frá því sem var yfir vertíðartímann.
Sighvatur GK landaði um 80 tonnum í Grindavík í gærmorgun eftir fimm og hálfrar lagnar túr. Í færslu á vef Síldarvinnslunnar er vitnað í Aðalstein Rúnar Friðþjófsson skipstjóra sem segir að aflinn hafi fengist á nokkrum veiðisvæðum, meðal annars á Belgableyðunni, Kóralhorninu og við Melsekk.
Uppistaða aflans var keila og langa auk þess sem nokkuð fékkst af karfa. „Þetta var virkilega fínn fiskur. Það var fínasta veður allan túrinn og ekki yfir neinu að kvarta,“ sagði Aðalsteinn. Sighvatur hélt aftur til veiða í gærkvöldi.
Erfitt að veiða í Ingólfshöfðahólfi
Í morgun kom síðan Páll Jónsson GK til hafnar með um 70 tonna afla. Benedikt Jónsson skipstjóri sagði aðstæður á miðunum krefjandi um þessar mundir og kvótastaðan farin að þrengjast, en engu að síður hefði túrinn skilað góðum afla.
Aflinn var að mestu leyti keila og langa, auk þess sem eitthvað fékkst af ýsu og þorski. Benedikt sagði lönguna hafa verið sérlega væna, meðalvigt hennar um tíu kíló, og meðalvigt keilunnar um þrjú kíló.
„Við byrjuðum á að fara austur í svonefnt Ingólfshöfðahólf,“ segir Benedikt, en Ingólfshöfðahólf varnýlega opnað eftir 20 ára lokun. „Það er fyrirhafnarmikið að veiða í hólfinu. Þar er lagt í stubbum undan straumi og botninn er mjög erfiður.“
Tvær og hálf lögn voru teknar í hólfinu áður en skipið færði sig yfir á Kötlugrunn þar sem aflinn reyndist einnig góður, þó nokkuð mikið hefði fengist af löngu. Páll Jónsson heldur aftur til veiða í kvöld.