Það var hátíðlegt um að litast í bókabúð Forlagsins við Fiskislóð þegar Vilhjálmur Pétursson sigraði handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir. Skáldsaga Vilhjálms, Harðindi, fjallar um Stein sem leggur ríðandi af stað úr bænum og ætlar aldrei að snúa aftur. Hann hefur misst trúna á framtíðina eftir að lífið í landinu versnandi. Hann er hrakinn og særður og er um það vil að gefast upp. Í bókinni skrifar Vilhjálmur um ferðalag manns á nöturlegum tímum.
Silja Aðalsteinsdóttir formaður dómnefndar Nýrra radda var með erindi og svo kom það í hlut Sigríðar Pétursdóttur að afhenda Vilhjálmi verðlaunin.
„Ég held að það sé ómögulegt að skrifa góða bók nema maður lesi sjálfur bækur,“ sagði Vilhjálmur Pétursson, rithöfundur og þýðandi, í viðtali við Morgunblaðið á dögunum.
Vilhjálmur útskrifaðist með BA-gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands árið 2012 og hefur um árabil starfað við þýðingar fyrir sjónvarp og ýmsa aðra miðla. Harðindi er hans fyrsta útgefna skáldverk en skilyrði fyrir þátttöku í Nýjum röddum eru að höfundur hafi ekki gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi.







