Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ó­dauð­legt þjóðhátíðarlag - Vísir

Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ó­dauð­legt þjóðhátíðarlag - Vísir

Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ó­dauð­legt þjóðhátíðarlag - Vísir

Þegar eldurinn verður kveiktur í Herjólfsdal um næstu helgi og þúsundir gesta fylla brekkuna er eitt lag nánast óaðskiljanlegt frá augnablikinu, „Þar sem hjartað slær sem Halldór Gunnar samdi en Magnús Þór Sigmundsson á textann. 

Viðtökurnar voru þó allt aðrar þegar lagið kom út árið 2012. Halldór Gunnar Pálsson heyrði sögur af Eyjamönnum sem líktu því við jarðarfararsálm og sögðust skammast sín fyrir lagið. Dómurinn snerist við þegar það var flutt í Herjólfsdal. Brekkan reis á fætur, tók undir og áður en helgin var liðin ómaði lagið úr tjöldum um allan dalinn.

Sagan á bak við lagið er um leið sagan af ferli Halldórs. Illa sunginn afmælissöngur vina hans varð kveikjan að Fjallabræðrum, kórnum sem kom honum fyrst á Þjóðhátíð. Þar tók hann síðar við stjórn sunnudagskvöldsins, samdi fleiri lög hátíðarinnar og varð einn þeirra sem hafa mótað tónlistarlega ásýnd hennar undanfarin ár. 

https://open.spotify.com/episode/5qbs7oKdyPAFWXfusrDdgo?si=fF8xLQtMTauPSY1tv_-IaQ

Í nýjasta þætti Eftirvaktarinnar segir Halldór frá því hvernig lagið varð til, augnablikinu þegar hann áttaði sig á að brekkan hefði tekið lagið til sín og leiðinni sem síðar lá úr Herjólfsdal í hljóðverið með Bubba Morthens og að 70 ára afmælistónleikum hans í Laugardalshöll.

Illa sunginn afmælissöngur varð að Fjallabræðrum

Upphaf Fjallabræðra var óformlegt. Vinir Halldórs sungu fyrir hann afmælissönginn, að hans sögn ekkert sérstaklega vel, en úr varð hugmyndin að kórnum sem hefur síðan komið fram á stærstu viðburðum landsins. 

Einn kórfélaganna er Vestmannaeyingurinn Hjálmar Helgason. Hann komst sjálfur í Fjallabræður eftir að hafa selt Vestfirðingi beltagröfu og taldi síðar tilvalið að koma kórnum á svið í Herjólfsdal.

Halldór Gunnar hefur á síðustu árum fært sig í auknum mæli yfir í upptökustjórn. Hann vann að nýjustu plötu Bubba Morthens og var tónlistarstjóri á sjötugsafmælistónleikum hans í Laugardalshöll.

Mótshaldarar tóku hugmyndinni fálega í fyrstu. Hjálmar bað þá hins vegar að treysta sér og bauð upp á óvenjulegt samkomulag. Samið yrði um lága lágmarksgreiðslu og ef atriðið yrði leiðinlegt þyrfti ekki að greiða meira. Síðan hringdi hann í Halldór og tilkynnti honum að Fjallabræður væru að fara að spila á Þjóðhátíð.

„Ég hafði ekki hugmynd um þennan díl sko,“ segir Halldór. Kórinn fékk fimmtán mínútur á sviðinu á föstudagskvöldi til að sýna hvað í honum bjó. „Maður þarf að sanna sig, það er ekkert gefið.“ Fjallabræður stóðust prófið. Atriðið sló í gegn og varð upphafið að löngu sambandi kórsins og Halldórs við Þjóðhátíð.

Gladiator gaf tóninn

Nokkrum árum síðar var Halldór beðinn um að semja þjóðhátíðarlagið 2012. Hann skildi ekki alveg hvers vegna valið hafði fallið á hann en hafði skýra mynd af því hvernig lagið ætti að hljóma. Árið áður hafði hann fylgst með þegar kveikt var í brennunni á föstudagskvöldinu.

Brennustjóranum Sigga Reim var ekið inn dalinn á vagni á meðan tónlistin úr Gladiator ómaði. Hann steig síðan niður, gekk að brennunni og kveikti í henni. Halldór horfði á og heillaðist af sviðsetningunni. 

„Þetta er „show business“ og mér fannst þetta svo flott að þetta hafði svo mikil áhrif á mig. Svona kveikir maður í brennu.“ 

Þegar Halldór hóf að semja lagið sat þessi mynd eftir. Tónlistin þurfti að vera jafn stór og augnablikið sem hún átti að hljóma við. 

„Þetta þarf að vera epískt, þetta er bara atriði í bíómynd, það er það sem þetta er.“

Halldór horfði jafnframt til sögu þjóðhátíðarlaganna. Fyrstu lög hátíðarinnar voru samin með Lúðrasveit Vestmannaeyja í huga og hann vildi tengja nýja lagið við þá hefð.

Lagið varð því valskennt og lúðrasveitin fékk stórt hlutverk. Halldór samdi lagið upphaflega fyrir Fjallabræður, fékk Sverri Bergmann til að syngja og Magnús Þór Sigmundsson til að semja textann.

Hann var með skýra sýn og ætlaði ekki að breyta henni til að reyna að þóknast væntanlegum hlustendum.

„Ef þú hefur bara eitt tækifæri til að gera þjóðhátíðarlag, þá gerirðu bara þjóðhátíðarlagið sem þú vilt, það sem þér finnst meika sens.“

Brekkan stóð upp og söng með

„Þar sem hjartað slær“ var frumflutt samtímis á helstu útvarpsstöðvum landsins. Þrátt Þrátt fyrir það var laginu ekki tekið sérstaklega vel í fyrstu. 

„Ég heyrði sögur af skipstjórum úti í Vestmannaeyjum sem fóru úr stýrishúsi niður í matsal að segja að þeir hefðu aldrei skammast sín jafn mikið fyrir að vera Eyjamenn. Hvaða jarðarfararsálmur er þetta eiginlega?“

Halldór hélt þó fast í sannfæringuna. Hann var ánægður með lagið og vissi hvaða hugsun lá að baki því. Endanlegi dómurinn yrði hvort sem er felldur í Herjólfsdal. Þegar lagið var flutt í brekkunni gerðist það sem Halldór hafði vonast eftir. 

„Brekkan stendur upp, syngur með okkur og lagið bara byrjar að óma út úr tjöldunum alla helgina.“

Hann man sérstaklega eftir því þegar upptakan var leikin í hátalarakerfinu á meðan skipt var um hljómsveit á sviðinu. Halldór gekk um svæðið fyrir framan sviðið og horfði upp í brekkuna þegar fólkið byrjaði að syngja með.

„Það var móment. Þá var ég bara eitthvað: Ókei, þau kunna lagið.“

Þar með vissi hann að lagið væri komið til að vera. Brekkan hafði tekið við því og gert það að sínu.

Fór aftur að kaffikönnunni með Magnúsi Þór

Velgengni „Þar sem hjartað slær“ varð ekki endapunkturinn á aðkomu Halldórs að tónlist Þjóðhátíðar. Árið 2016 var hann aftur beðinn um að semja lag hátíðarinnar. Magnús Þór var í fyrstu tregur til að taka þátt. Fyrra lagið hafði heppnast svo vel að Honum fannst algjört glapræði að reyna að fylgja því eftir. Best væri að taka sigrinum og hætta.

Halldór hélt áfram, samdi melódíuna og mótaði lagið. Í demóinu var hann þegar búinn að setja inn klapp og stamp þegar hann sendi það til Magnúsar. Magnús hringdi skömmu síðar og sagðist vera kominn með hugmynd. Halldór yrði þó að koma til Hveragerðis til að heyra hana. Ef hugmyndin yrði sögð í síma myndi hann líklega skella á.

Þegar Halldór kom stóðu þeir um stund og spjölluðu. Síðan, við gulllitaða kaffikönnu Magnúsar, sneri hann sér að Halldóri, horfði í augun á honum og söng:

„Ég klappa lófum.“

Halldór öskraði af fögnuði og hugmyndin var tekin alla leið. Úr varð „Ástin á sér stað“, sem Sverrir Bergmann og Friðrik Dór sungu. Fjallabræður syngja viðlagið, klappa og stappa, þótt þeirra sé ekki sérstaklega getið í skráningu lagsins.

Stærsta rúta á Íslandi

Aðkoma Halldórs að Þjóðhátíð takmarkaðist ekki við lagasmíðarnar. Hann stýrði sunnudagskvöldinu um árabil og vann með mótshöldurum og listamönnum að lagavali, flæði og uppbyggingu kvöldsins.

Leiðarljósið var að öllum liði vel og allir vissu hvað væri að fara að gerast. Listamennirnir þyrftu að vera öruggir á sviðinu og dagskráin að þjóna fólkinu í brekkunni. Halldór líkir brekkusöngnum við risavaxið rútuferðalag þar sem einn heldur á hljóðnemanum en allir hinir taka undir.

„Þjóðhátíð er stærsta rúta á Íslandi. Þetta er bara risastór rúta og þú ert með mækinn.“ 

Þrátt fyrir mikinn undirbúning sé grunnhugmyndin einföld.

„Þetta gigg, það á bara að vera gaman.“

Í brekkunni séu einnig íslensk dægurlög varðveitt og færð áfram til nýrra kynslóða. Þar læri ungt fólk lög sem komu út áratugum áður en það fæddist.

„Þarna lærirðu Þórsmerkurljóð, þarna lærirðu söknuð og allt þetta. Þarna er þetta haldið við og það er mjög fallegt. Þetta er katalógurinn okkar, þetta er menningararfurinn.“

Bubbi skildi gítarinn eftir

Reynslan af því að móta stór tónlistaratriði nýttist Halldóri síðar í hlutverki upptökustjóra. Hann segir tæknilega kunnáttu vissulega mikilvæga en mannlega þáttinn ekki síður. Fólki þurfi að líða vel og það eigi að vera gaman að búa til tónlist. 

Samstarf hans og Bubba Morthens hófst nánast fyrir tilviljun. Bubbi kom í hljóðver Halldórs til að syngja í laginu „Til hvers þá að segja satt?“ með Friðriki Dór. Hann var á leið til Spánar og spurði hvort kassagítarinn sinn mætti verða eftir í hljóðverinu.

Halldór samþykkti það með því skilyrði að hann mætti spila á gítar Bubba Morthens á meðan.

Hér fyrir neðan má heyra Bubba og Friðrik Dór flytja lagið Hún af nýjustu plötu Bubba sem Halldór tók upp. 

Um tíu dögum síðar kom Bubbi aftur. Þá tilkynnti hann Halldóri hvert næsta verkefni hans yrði.

„Þú ert að fara að gera fyrir mig plötu.“

Halldór vissi ekki nákvæmlega hvers vegna Bubbi hafði valið hann eftir þessa einu heimsókn. Kannski hafði honum liðið vel í hljóðverinu eða séð eitthvað í vinnubrögðunum. Halldór sagði einfaldlega já. 

Samstarfið leiddi til plötunnar Ég er ekki sá sem þú heldur ég er sá sem ég er. 

Halldór sá um útfærslu og hljóðritun en viðurkenndi í upphafi að hann vissi ekki hvernig maður ætti að gera Bubba-plötu.

Bubbi bað hann að flækja málið ekki.

„Hey, vertu rólegur. Gerðu bara það sem þú fílar. Ég læt þig vita ef ég fíla þig ekki. Vertu bara þú.“

Þetta frelsi varð grunnurinn að samstarfinu. Báðir gátu kastað fram hugmyndum án þess að taka því persónulega þótt þeim yrði hafnað. Þeir unnu úr um sextíu til sjötíu lögum. Halldór heillaðist af því hversu auðveldlega Bubbi gat tekið texta, fundið lag við hann og síðan samið allt annað lag við sama texta daginn eftir.

Mesti lærdómurinn fólst þó í vinnuseminni.

„Vakna á hverjum einasta morgni og semja lag allan daginn, alla daga. Vakna með tilgang, sofna með tilgang. Það er það sem Bubbi gerir.“

„Þú ert tónlistarstjóri“

Plötusamstarfið leiddi beint inn í undirbúning 70 ára afmælistónleika Bubba í Laugardalshöll. Bubbi tilkynnti Halldóri hlutverk sitt með sama hætti og þegar hann fól honum plötuna. 

„Þú ert tónlistarstjóri.“

Halldór sagði aftur já og lýsir tónleikunum sem þeim skemmtilegustu sem hann hefur spilað á um ævina. Í upphafi var unnið með lista yfir meira en fimmtíu lög. Vandinn var ekki að finna nægilega mörg góð lög heldur að ákveða hverjum þeirra væri hægt að sleppa. Halldór telur lagabanka Bubba svo stóran að hægt væri að halda heilt sveitaball. eingöngu með lögum hans án þess að fólk tæki strax eftir þemanu.

„Ég gæti í alvörunni bara farið á Þingeyri á sjómannadagsball og spilað bara Bubbalög.  Klukkan er orðin svona hálfþrjú þegar fólk fer að átta sig á því að ég sé bara að spila Bubbalög vegna þess að ballið er bara gott.“

Hér má lesa dóm Jónas Sen um tónleikana. Hann gaf þeim 5 stjörnur, eða fullt hús, sem er fáheyrt. 

Halldór lagði sérstaka áherslu á að „Frelsarans slóð“ yrði flutt en Bubbi hafði ekki spilað lagið lengi. Einnig voru dregin fram lög sem sjaldan eða aldrei höfðu heyrst á tónleikum. Hlutverk Halldórs var að hjálpa til við að draga upp heildarmynd af ferli Bubba og sýna hversu fjölbreyttur lagabanki hans er. Sama hljómsveitin þurfti að geta flutt bæði „Þingmannagælu“ og „Hiroshima“ af fullri sannfæringu.

„Mér fannst þetta bara svona heiður að fá að taka þátt í því að búa til þetta póstkort af þessum stórkostlega listamanni á þessu tímabili í lífi hans.“

Æfðu eins og heimsreisa væri fram undan

Háskólabíó var tekið á leigu í heilan mánuð fyrir æfingar. Halldór lagði strax áherslu á að tónlistarmennirnir læsu ekki af nótum. Þeir þyrftu að læra lögin og verða að raunverulegri hljómsveit.

„Engar nótur, við þurfum bara að læra þetta og við þurfum að spila þetta, bara spila.“ 

Á hverri æfingu voru 36 lög leikin í gegn nánast án þess að stoppa. Æft var eins og heimsreisa væri fram undan, þótt aðeins ætti að halda tvenna tónleika. Halldór vildi að hljómsveitin gæti fylgt Bubba hvert sem hann færi. Ef hann tæki óvænta beygju á sviðinu ættu allir að beygja með honum.

„Hann er bara „living, breathing rock'n'roll machine“ sem er bara með 5.000 manns fyrir framan sig og hann getur alveg tekið einhverja hægri beygju.“ 

Þegar tónleikarnir hófust var dagskráin orðin hljómsveitinni svo töm að hið óvænta var ekki lengur ógn. Ef eitthvað breyttist var alltaf einhver tilbúinn að bregðast við.

„Það skiptir engu máli hvað gerist, það er alltaf einhver sem grípur. Það er að vera í hljómsveit.“

#brennuna #gladiator #kveikti #neistann #við


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262915070d/gladiator-kveikti-neistann-vid-brennuna-og-ur-vard-odaudlegt-thjodhatidarlag

📰 Aðrar fréttir

Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert bólar á íslensku landbúnaðarleiðinni
📅 29.10.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert bólar á íslensku landbúnaðarleiðinni
Mynd Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst
Age-checking methods for under-16s social media ban set out
📅 29.10.2026 👁️ 1
Age-checking methods for under-16s social media ban set out
Ofcom says photo and digital ID, banking checks or facial age estimation can help prove someone is 16 or over.
John Healey promises reduction in welfare bill before next election
📅 29.10.2026 👁️ 1
John Healey promises reduction in welfare bill before next election
The Conservatives criticised the chancellor for not providing more details on welfare reform in his Budget.
Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
📅 29.10.2026 👁️ 2
Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
Upplýsingum um fleiri en 41 þúsund starfsmenn heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna var lekið á netið í gær af óhagnaðardrifnum samtökum uppljóstrara se...
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
📅 29.10.2026 👁️ 2
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
Emergency teams worked through the night to find victims after one of the worst rail disasters in Europe's modern history.
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
📅 29.10.2026 👁️ 4
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
Vox, þjóðernissinnaður fjarhægriflokkur á Spáni, hefur segist ætla að kæra fyrirtækið ADIF, sem sér um lestarinnviði landsins, fyrir manndráp af gáley...
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
📅 29.10.2026 👁️ 4
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
Albönsk stjórnvöld hafa ákveðið að sekta róstusama mótmælendur. Sektin hljóðar upp á 500 þúsund albanska leks, sem samsvarar um það bil 750 þúsund ísl...
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
📅 29.10.2026 👁️ 4
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
Þjóðaröryggisráð Moldóvu hefur boðað til fundar vegna netárásar sem gerð var á gagnabanka stjórnvalda. Árásin átti sér stað dagana 19. til 23. október...
George Michael: Family row over dozens items up for auction
📅 29.10.2026 👁️ 5
George Michael: Family row over dozens items up for auction
The brother of the singer's late personal assistant says she would not have wanted the items to be sold.
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
Sænski milljarðamæringurinn, sem er einnig þekktur sem „Notch“, greiddi sömu fjárhæð fyrir eignina þegar hann festi á henni kaup árið 2014, að því er ...
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
Greint var frá því í kvöld að þætti Kveiks um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda hefði verið kippt út af vef Ríkisútvarpsins tíma...
Floods: Building boom in Nepal and India's Uttarakhand puts 300,000 people in path of potential Himalayan disasters, study suggests
📅 28.10.2026 👁️ 5
Floods: Building boom in Nepal and India's Uttarakhand puts 300,000 people in path of potential Himalayan disasters, study suggests
The construction of tourism facilities, housing, and infrastructure has surged in parts of Nepal and India's Uttarakhand.
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
📅 28.10.2026 👁️ 3
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi í Tennessee fylki á sunnudagskvöld. Þeir sem þekkja til óttast að hann muni drepa aftur þar sem hann hafi en...
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
„Ég er réttkjörinn forseti og glæpamennirnir sem stálu kosningunum í Brasilíu tilheyra glæpasamtökum sem hafa komið á harðstjórn,“ sagði brasilíski fo...
Details of thousands of US immigration agents leaked in major hack
📅 28.10.2026 👁️ 4
Details of thousands of US immigration agents leaked in major hack
A group called the Department of Peace released information on more than 41,000 DHS staff.
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
📅 28.10.2026 👁️ 4
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
Norskur barnalæknir og prófessor við Háskólann í Ósló telur að börn eigi almennt ekki að hefja leikskólagöngu fyrr en við tveggja til þriggja ára aldu...
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
📅 28.10.2026 👁️ 4
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir það verulegt áhyggjuefni að Karim Askari, formaður Stofnunar múslíma á Íslandi, fordæmi ekki skil...
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
📅 28.10.2026 👁️ 4
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
Earlier in the day, the King paid his respects to the island's fallen servicemen and women.
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
📅 28.10.2026 👁️ 4
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
The crash, between a moving train and another that was stopped further up the track, was caused by an "inexplicable" error, the transport minister sai...
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
📅 28.10.2026 👁️ 4
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
Stutt myndbrot innan úr golfhermi fyrirtækisins Gullkylfunnar birtist í Kveik í gærkvöldi.Myndefnið var tekið af samfélagsmiðli fyrirtækisins Vopnabúr...
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
📅 28.10.2026 👁️ 4
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
Leigufélög almennt óánægð með takmarkanir á leiguRagnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir mikilvægt að halda til haga fyrir hverj...
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
Tímaritið Life hóf göngu sína sem vikurit árið 1936 og fjallaði um stórviðburði, áhrifafólk og hversdagslegan veruleika 20. aldarinnar. Það náði hátin...
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
📅 28.10.2026 👁️ 4
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
The Heroes and Nashville star died in August from the toxic effects of fentanyl, Xanax and several other drugs.
Lýsa upp skammdegið með list
📅 28.10.2026 👁️ 5
Lýsa upp skammdegið með list
Hátíðin hefur verið haldin síðan um aldamót. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Austurlandi í tengslum við hátíðina.Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, ...
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
📅 28.10.2026 👁️ 5
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
Heimurinn bíður með eftirvæntingu eftir þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð (einnig þekkt sem reta) sem lyfjaframleiðandinn Eli Lilly er nú með í klíní...
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari Rögnu Bjarnadóttur, forstjóra Fangelsismálstofnunar, við fyrirspurn fréttastofu. Nýlega var fjallað um kvörtun kven...
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
📅 28.10.2026 👁️ 5
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
„Þetta var þungur þáttur. Hann var þungur, ósanngjarn, einhliða og ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum,“ segir Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, móðir ...
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
Peningastefnunefnd bankans tilkynnti í dag að vextir yrðu hvorki hækkaðir né lækkaðir þrátt fyrir að litlar sem engar framfarir hafi orðið í baráttunn...
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
📅 28.10.2026 👁️ 5
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
Það er töluvert langt í land þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda á mann á Íslandi borið saman við önnur lönd í Evrópu. Þörf er á samstilltu áta...
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
Þetta segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf lögr...
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
📅 28.10.2026 👁️ 5
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje? Fréttin28. október 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: Selma Gamalel...
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
📅 28.10.2026 👁️ 5
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, segir það koma mest á óvart í þingkosningunum í Ísrael að Netanjahú hafi ekki tapað meir...
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
📅 28.10.2026 👁️ 5
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
Fjallað var um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik. Þar kom meðal annars fram að slíkum úrræðum hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu áru...
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
📅 28.10.2026 👁️ 5
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
Lögreglumönnum fjölgað um 50 á hverju ári til 2031Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári samkvæmt nýrri löggæsluáætlun til ársins 2031. Þá eiga lögreglum...
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
📅 28.10.2026 👁️ 4
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
Ný heimildarmynd um Matthew Perry er nú komin á Netflix, en þar vantar nokkur mjög kunnugleg andlit.Í dag (28. október) eru liðin þrjú ár frá skyndile...
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
Eyrún flutti út fyrir sex árum og býr með kærastanum sínum Oskari, sem er líka leikari. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Eyrún tókst á við sit...
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins frá því í gær um að Usmani hefði haldið trúarlegan fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg í Reykjavík á m...
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
📅 28.10.2026 👁️ 4
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
The Provincial Court of Santa Cruz de Tenerife has sentenced a man to 37 years and six months in prison for murdering his partner’s brother, attemptin...
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
„Hann er á leiðinni aftur inn,“ segir Ragnhildur Þrastardóttir, ritstjóri Kveiks, um þáttinn í samtali við Vísi. Hún segir að uppfæra hafi þurft mynde...
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
📅 28.10.2026 👁️ 4
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum Fréttin28. október 2026Erlent, Evrópusambandið...
Múslímavandi Samfylkingar
📅 28.10.2026 👁️ 4
Múslímavandi Samfylkingar
Múslímavandi Samfylkingar Fréttin28. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Talsmaður Samfylkingar ...
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
Í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu sendiráðsins kom fram að sendiráðið yrði opnað á réttum tíma í fyrramálið, fimmtudaginn 29. október. Þá vær...
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
Þrír menn hafa verið sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kveikja í Teslu-bifreið rannsóknarlögreglukonu hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu....
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
📅 28.10.2026 👁️ 4
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
The chancellor announced a series of measures which will impact under-25 year-olds from housing to minimum wage.
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
VÍK - Vináttufélag Íslands og Kúbu efndi til mótmæla fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í dag. Mótmælin voru haldin vegna atkvæðagreiðslu ...
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
📅 28.10.2026 👁️ 5
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
His arrival in the US ends speculation about his whereabouts after he failed to comply with an order to surrender his passports.
Flávio Bolsonaro denies fleeing Brazil after landing in Miami
📅 28.10.2026 👁️ 4
Flávio Bolsonaro denies fleeing Brazil after landing in Miami
The defeated Brazilian candidate claims to be the victim of a coup d’état and political persecution, recycling unsubstantiated allegations of “elector...
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
Í ákæru á hendur mönnunum þremur, sem hafa allir neitað sök, segir að um hafi verið að ræða Teslu Model 3, 2020 árgerð, sem var í eigu lögreglumanns o...