Prófessor í ónæmisfræði segir notkun peptíða án þess að ráðfæra sig við lækni geta verið lífshættulega. Enn er verið að kortleggja möguleg skaðleg áhrif slíkrar notkunar.
Sýnishorn af ólöglegum peptíðum sem tollgæslan lagði hald á og sendi til greiningar erlendis innihéldu mikil óhreinindi. Ómögulegt var að staðfesta hvort hluti sýnishornanna innihéldi virku lyfjaefnin sem þau voru sögð innihalda.
„Þegar fólk er að nota þetta ekki samkvæmt læknisráði og ekki frá virtum framleiðendum eftir ströngum framleiðsluskilyrðum er það að hleypa hættunni heim,“ segir Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands. Hann bendir á að í þessum efnum hafi fundist arsen, blý og óhreinindi. Rætt var við hann í þættinum Fram undan á Rás 2 í morgun.
„Það hafa hreinlega verið í þessu bakteríur þannig að fólk hefur smitast og fengið lífshættulegar sýkingar. Svo hefur þetta valdið lifrarskaða og ýmsum tauga- og vöðvasjúkdómum. Þannig að hættan er mikil og fólk er að tefla mjög hættulegan leik þegar það er að kaupa svona af netinu og af einhverjum aðilum sem það veit engin deili á og eftir mjög óskráðum leiðbeiningum.“
Mikilvægt að leita til læknis ef vandi kemur upp
Björn Rúnar segir fólk oft skammast sín þegar það lendir í vanda eftir inntöku peptíða eða efna sem seld eru sem peptíð. Það leyni jafnvel heilbrigðisfólki og sínum læknum því að það sé að nota efnin.
„Ég hvet fólk eindregið til að láta vita vegna þess að þá er kannski hægt að bregðast við með betri hætti við þeim vanda sem fólk er komið í. Það er gríðarlega mikilvægt að fólk reyni að vera hreinskilið og sannsögult um það að það sé að nota þessi efni þegar svona hlutir koma upp og ræða það,“ segir Björn Rúnar.
Það sé ekki síður mikilvægt að fólk sem er að íhuga að byrja að nota þessi efni ræði það við sinn heimilislækni.
Enn er verið að kortleggja skaðleg áhrif af notkun peptíða eða efna sem seld eru sem peptíð. Lítið er vitað um möguleg langtímaáhrif.
„Það er farið að koma í ljós svona skammtímaáhrif, fólk er að fá heiftarleg viðbrögð, ofnæmisviðbrögð jafnvel, eða svona lífshættulegar afleiðingar eins og lifrarbólgu eins og ég nefndi áðan og fleira. Þannig að það er farið að koma í ljós. En svo er það hitt sem er kannski enn alvarlegra – það eru langtímaafleiðingarnar.“