Fimm grísir drápust og gyltu var lógað eftir innbrot í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í nótt. Brotist var inn í sama bú í vor og þetta er fjórða innbrotið í eldisbú á fjórum mánuðum.
Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að ekki sé hægt að alhæfa um að sama fólk hafi verið að verki. „Þar til við fáum sannanir fyrir öðru er þetta allt rannsakað í sitt hvoru lagi sem sérstakt brot.“
Hjördís segir lögregluna ekki hafa á miklu að byggja í þessum rannsóknum vegna skorts á myndefni. Engar myndavélar eða öryggiskerfi eru við svínabúið. „Það sem okkur langar að biðla til þeirra sem eru með dýrabú er að bæta í öryggi, myndavélar og öryggiskerfi.”