Forstjóri Íslandshótela gerir ráð fyrir að allt starfsfólk Hilton Nordica og Natura-hótelanna verði ráðið til Íslandshótela, sem hafa gert leigusamning um húsnæðið við Reiti. Starfsfólki Hilton Nordica og Natura-hótelanna, sem eru í eigu Berjaya, var tilkynnt í gær að því yrði öllu sagt upp í næstu viku.
„Við erum ekki beint að taka yfir reksturinn heldur er leigusamningurinn við Berjaya runninn út og við erum með nýjan leigusamning við Reiti, sem eiga fasteignirnar, og munum hefja þarna okkar rekstur 1. september,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
„Við munum að sjálfsögðu koma fram af virðingu við þetta starfsfólk, margt hvert búið að vinna þarna mjög lengi þannig að öllu þessu fólki verður boðið að koma í samtal við okkur og við gerum ekki ráð fyrir öðru en að ráða þetta fólk aftur inn til okkar,“ segir Davíð.
Vísir greindi frá því að starfsfólk upplifði óvissu um framtíð sína. Davíð segir það miður.
„Við hefðum að sjálfsögðu viljað gera þetta saman, með núverandi leigutökum, þannig að það væri hægt að eiga þetta samtal við starfsfólkið bara á sama tíma,“ segir Davíð.
„En þeir velja það að gera þetta svona og hafa svo sem sínar ástæður fyrir því, en við munum þá bara vanda okkur og setja okkur í samband við og erum í góðu sambandi við stéttarfélögin, við erum í góðu sambandi við trúnaðarmennina sem eru á hótelunum. Við reynum að koma öllum þessum upplýsingum eins fljótt og mögulegt er til allra starfsmanna.“