Bíladögum á Akureyri lauk um helgina og gengu þeir vonum framar, að sögn skipuleggjanda. Aðsóknin var betri en búist var við en veðrið var engu að síður hálfleiðinlegt.
„Við vorum mjög óheppin með veður. Það var kalt og blautt og við þurftum að fresta virðulegu götuspyrnukeppninni um einn dag,“ segir Einar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Bílaklúbbs Akureyrar, í samtali við mbl.is.
„Maður fann að fólk kunni að meta að þetta skuli vera haldið og aðsóknin var engu síðri þó að veðrið væri ekki alveg með okkur.“
Slysalaust á svæðinu
Að sögn Einars var hátíðin, sem var haldin frá 17. til 20. júní, vel heppnuð og alveg slysalaus innan svæðisins.
„Við byrjuðum bílasýninguna í Vogunum 17. júní og það hefur orðið hefð fyrir því að hafa hana þá. Síðan voru viðburðirnir á svæðinu frá 18. til 20. júní.“
Vegasalt á bílum eitt af skemmtiatriðum
Bætt var við einum viðburði sem er vegasalt á bílum og telur Einar að hann hafi verið meira skemmtiatriði heldur en eitthvað Íslandsmeistaramót í akstursíþrótt.
„Þetta er orðið mjög vinsælt. Þá eru bara styrkjur sem þú keyrir upp á og svo áttu að ná að halda jafnvægi þegar þú ert kominn á punktinn. Ég held að engum hafi tekist að halda jafnvægi. Svo er gefið refsistig þar sem áhorfendur eru dómararnir og stigin eru gefin fyrir fagnaðarlæti sem koma,“ segir hann og bætir við að þetta sé alveg slysalaust.
Utanumhald til fyrirmyndar
Heimir Harðarson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra sem var á vakt á meðan á Bíladögum stóð, segir að heilt yfir hafi hátíðin gengið vel fyrir sig.
„Bílaklúbburinn hélt mjög vel utan um þessa viðburði. Þeir ráku einnig tjaldstæði meðan á þeim stóð og utanumhaldið og öryggisgæslan var til fyrirmyndar.“
Átta líkamsárásir og 151 ók of hratt
Hann nefnir þó orsakir og afleiðingar þar sem það var mikil aðsókn í bæinn og komu upp dæmi um unglingadrykkju, hraðasektir og átta líkamsárásir þar sem þrjár teljast alvarlegar.
„Það bar á unglingadrykkju. Við þurftum í nokkrum tilfellum að fá foreldra til að sækja ofurölvi einstaklinga undir lögaldri," segir hann.
„Síðan var 151 ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur. Þar af voru fimm sem voru á 130 kílómetra hraða og hraðasti ökumaðurinn á 137 kílómetra hraða,“ bætir Heimir við.



