Gul veðurviðvörun tekur gildi í Faxaflóa klukkan þrjú í nótt og stendur yfir til klukkan níu á fimmtudagsmorgun. Búist er við suðvestanverðri átt, þrettán til tuttugu metrum á sekúndu og rigningu. Vindhviður gætu náð staðbundið við fjöll yfir þrjátíu metra á sekúndu.
Klukkan fjögur í nótt fer einnig í gildi gul veðurviðvörun á Suðvesturlandi. Búast má við álíka veðurskilyrðum þar. Viðvörunin þar verður í gildi til klukkan átta í fyrramálið.
Varasamt veður verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.