Gagnrýna gerð samnings um heilsufarsþjónustu við starfsfólk og segja hann aldrei hafa verið kynntan - DV

Gagnrýna gerð samnings um heilsufarsþjónustu við starfsfólk og segja hann aldrei hafa verið kynntan - DV

Gagnrýna gerð samnings um heilsufarsþjónustu við starfsfólk og segja hann aldrei hafa verið kynntan - DV

Á morgun weu sveitarstjórnarkosningar á Íslandi en á meðan kosningabaráttunni hefur staðið hafa sveitarstjónir, ráð og nefndir haldið starfsemi sinni ótrauð áfram. Í þessari viku hafa farið fram síðustu fundir fyrir kosningar og þar á meðal í bæjarráði Hafnarfjarðar. Meðal þess sem var rætt á fundinum var samningur bæjarins um heilsuþjónustu við hóp lækna. Þjónustunni er ætlað að veita litlum hluta af starfsfólki bæjarins þjónustu vegna heilsufars og er að sögn ætlað að bregðast við háu veikindahlutfalli meðal starfsfólks bæjarins. Fulltrúar minnihlutans í bæjarráði gagnrýndu gerð samningsins og sögðu hann aldrei hafa verið kynntan í ráðinu áður en gengið var frá honum. Fulltrúar meirihlutans neituðu því og sögðu samninginn fyrst hafa verið kynntan á fundi ráðsins í febrúar en í fundargerð þess fundar er hins vegar ekki minnst á umræddan samning með beinum hætti.

Um er að ræða samning við heilsuþjónustuna Lifeline Health. Heimasíða þjónustunnar er enn í vinnslu en á Facebook-síðu hennar segir:

„Lifeline Health er heildræn heilsuþjónusta byggð upp af læknum á Íslandi með fókus á fjórar grunnstoðir heilsu: hreyfing, næring, svefn og andleg heilsa. Við bjóðum upp á heilsufarsskoðanir og persónusniðin heilsuplön.“

Að öðru leyti er ekki miklar upplýsingar að finna á Facebook-síðunni.

Auk Hafnarfjarðarbæjar hefur verið gerður samningur við Vestmannaeyjabæ en í tilkynningu frá síðarnefnda sveitarfélaginu um samninginn sagði að hann snerist um heilsufarsskoðanir og heilsueflingu fyrir starfsfólk bæjarins. Markmiðið með þessu væri að styðja við heilbrigði, vellíðan og forvarnir starfsfólks með faglegri og einstaklingsmiðaðri nálgun.

Kynning

Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í vikunni lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar, sem eru í minnihluta fram ýmsar spurningar um samning bæjarins við Lifeline Health.

Spurt var hver sé kostnaður bæjarins við þennan samning og hvaða fjárheimild hafi verið til staðar vegna þessara útgjalda. Hver velji þá 80 bæjarstarfsmenn sem eigi að njóta þessarar þjónustu og hvernig verði það gert. Hver hafi séð um val á því fyrirtæki sem þjónustuna eigi að veita og hvort leitað hafi verið til fleiri aðila á þessum vettvangi, sem veiti sambærilega þjónustu. Spurt var loks  hvort útboð hafi verið viðhaft og hvers vegna málið hafi ekki verið kynnt fyrir bæjarráði, sem sé ábyrgt fyrir starfsmannamálum bæjarins.

Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem eru í meirihluta höfnuðu því í bókun að samningur Hafnarfjarðarbæjar við Lifeline Health hafi verið gerður án kynningar eða umræðu innan bæjarins. Málið hafi verið kynnt á fundi bæjarráðs þann 5. febrúar síðastliðinn þegar mannauðsstjóri hafi lagt fram minnisblað um veikindahlutfall hjá Hafnarfjarðarbæ og þær aðgerðir sem fyrirhugaðar væru til að draga úr veikindum, styðja betur við starfsfólk og efla vellíðan á vinnustöðum bæjarins. Í þeirri kynningu hafi verið farið yfir 18 mánaða verkefnið Vellíðan í starfi, sem sé hluti af markvissri vinnu mannauðsteymisins til að bregðast við veikindahlutfalli og styrkja heilsu, starfsánægju og vellíðan starfsfólks. Innan þess verkefnis hafi m.a. verið kynnt þátttaka í þróunarverkefni með Lifeline Health.

5. febrúar

Í fundargerð fundar bæjarráðs 5. febrúar síðastliðinn er ekkert minnst á þennan samning en minnisblað mannauðsstjóra um veikindahlutfall starfsfólks fylgir með fundargerðinni undir dagskrárliðnum Mannauðsmál Hafnarfjarðarbæjar, fyrirspurnir, en um það segir í fundargerðinni:

„Lögð fram svör við fyrirspurn Samfylkingarinnar um fjarvistir starfsfólks hjá Hafnarfjarðarbæ,“ og í bókun þakka fulltrúar Samfylkingarinnar fyrir svörin.

Í minnisblaðinu er hins vegar ekkert minnst á þennan nýja samning við Lifeline Health. Um verkefnið Vellíðan í starfi, sem meirihlutinn vísaði til í svörum sínum nú í maí, segir að það yrði sett af stað í byrjun mars og væri 18 mánaða vegferð að bættri heilsu og betri líðan. Á stjórnendadegi 26. febrúar yrði verkefnið kynnt fyrir öllum stjórnendum Hafnarfjarðarbæjar. Stjórnendur myndu síðan kynna verkefnið á sínum vinnustöðum. Verkefnið væri samvinnuverkefni allra sem starfi hjá Hafnarfjarðarbæ og kynntur yrði aðgerðarpakki til að styðja við starfsfólk og stjórnendur.

Í minnisblaðinu eru síðan tiltekin átta atriði sem séu hluti af þessum aðgerðapakka og þar á meðal sé:

„Bjóða tveimur vinnustöðum upp á að taka þátt í tilraunaverkefni sem felst í ítarlegum heilsufarsmælingum og eftirfylgni í 12 mánuði, verkefnið verður unnið af læknum.“

Nánari upplýsingar um að gerður yrði sérstakur samningur um þetta tilraunaverkefni og hvað það myndi kosta bæinn var hins vegar ekki að finna í minnisblaðinu. Upplýsingar um umrædda lækna eða nafn tilraunaverkefnisins komu heldur ekki fram. Þegar minnisblaðið var lagt fram hafði þegar verið tilkynnt um samning Vestmannaeyjabæjar við Lifeline Health. Hvort að þjónustan hafi ekki verið nafngreind í minnisblaðinu vegna þess samningurinn hafi enn verið í vinnslu liggur ekki fyrir.

Heimild

Meirhluti bæjarráðs sagði enn fremur á fundi þess nú í vikunni að verkefnið væri innan fjárheimilda og kostnaður við það nemi 3.160.000 króna en samningurinn sé til eins árs. Um sé að ræða afmarkað þróunarverkefni sem falli að þeim áherslum sem þegar hafi verið kynntar bæjarráði og væru liður í ábyrgri mannauðsstefnu bæjarins. Markmiðið væri að draga úr veikindum, styðja við starfsfólk og skapa heilbrigðari vinnustaði. Það væri bæði mannúðlegt og fjárhagslega skynsamlegt að grípa fyrr inn í og leita nýrra leiða til að bæta líðan starfsfólks:

„Verkefnið Vellíðan í starfi var einnig kynnt öllum stjórnendum Hafnarfjarðarbæjar á stjórnendadegi í lok febrúar. Í kjölfarið gátu vinnustaðir óskað eftir þátttöku í Life line verkefninu. Nokkrir vinnustaðir sýndu því áhuga og mannauðsteymi bæjarins fór yfir þær umsóknir. Við val á þátttakendum var horft til þess að verkefnið næði til ólíkrar starfsemi bæjarins og hæfilegs fjölda starfsfólks en hámarksfjöldi þátttakenda er 80 manns. Hér er ekki um að ræða óvænta eða ókynnta ákvörðun, heldur eðlilegt framhald af vinnu sem þegar hefur verið kynnt bæjarráði og stjórnendum bæjarins. Undirritun samnings um framkvæmd verkefnisins átti því ekki að koma bæjarfulltrúum á óvart.“

Ekkert ákveðið

Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram gagnbókun þar sem þeir tóku ekki undir að samningurinn við Lifeline Health hefði verið kynntur með fullnægjandi hætti áður en gengið var frá honum:

„Í minnisblaði mannauðsstjóra voru ýmsar hugmyndir reifaðar, en engar ákvarðanir teknar. En að grípa svo til þess örfáum dögum fyrir kosningar, að undirlagi pólitískra fulltrúa í meirihluta, er í anda þess að um sýndarmennsku og yfirboð er að ræða. Málið er vanbúið og samningur við einkaaðila upp á 3 milljónir króna ósamþykktur og ókynntur í bæjarráði, sem ber ábyrgð á starfsmannamálum bæjarins. Starfsmenn bæjarins eru alls meira en tvö þúsund, en þetta verkefni nær aðeins til 80 starfsmanna. Ekki var leitað tilboða í verkefnið, ekki er sérstök fjárheimild til staðar og engin formleg samþykkt gerð um málið í bæjarráði. Og samningur við þjónustuaðila ekki undirritaður fyrr en fyrir nokkrum dögum. Heilsa og ánægja starfsmanna er mikilvægt mannauðsmál. Þau ber að taka alvarlega. Þau mál á ekki að setja á altari pólitískrar sýndarmennsku.“

#gagnrýna #gerð #heilsufarsþjónustu #samnings #við


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/15/gagnryna-gerd-samnings-um-heilsufarsthjonustu-vid-starfsfolk-og-segja-hann-aldrei-hafa-verid-kynntan/

📰 Aðrar fréttir

„Viljum ekki leggja börnin okkar að veði til að komast í skólann“
📅 02.10.2026 👁️ 0
„Viljum ekki leggja börnin okkar að veði til að komast í skólann“
Foreldrar skólabarna í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla segja tímaspursmál hvenær slys verður þegar skólabíll ekur með börn þeirra um Kambanesskriður...
Búið að opna veginn um Eyrarhlíð
📅 02.10.2026 👁️ 0
Búið að opna veginn um Eyrarhlíð
Vegurinn um Eyrarhlíð, milli Hnífsdals og Ísafjarðar, hefur verið opnaður á ný. Frá þessu greinir lögreglan á Vesturlandi.Aurskriða féll á veginn fyrr...
Two men charged with terrorism offences in Manchester
📅 02.10.2026 👁️ 0
Two men charged with terrorism offences in Manchester
The pair were arrested in the Northern Quarter area of the city on the eve of Yom Kippur.
Þórarinn varar við óvæntri afleiðingu skattahækkunar: „Helgarpabbar landsins dæmdir í eilífa útlegð“
📅 02.10.2026 👁️ 0
Þórarinn varar við óvæntri afleiðingu skattahækkunar: „Helgarpabbar landsins dæmdir í eilífa útlegð“
Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón heldur áfram að vekja líflegar umræður, en eins og greint hefur verið frá stendur til að hækka hann úr 11%...
Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
📅 02.10.2026 👁️ 0
Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsmálaráðherra segir að það sé eftirsjá að Herði Arnarsyni fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar. Ekkert sé hæ...
Staðsetning Íslands mikilvæg fyrir Kanada
📅 02.10.2026 👁️ 0
Staðsetning Íslands mikilvæg fyrir Kanada
Ógn Rússa á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum er alvarleg. Þetta segir varnarmálaráðherra Kanada. Rússar beiti fjölþáttaógnum og drónum á mikilvæga i...
One dead after lorry overturns on motorway in Tenerife
📅 02.10.2026 👁️ 0
One dead after lorry overturns on motorway in Tenerife
One person has died and several others have been injured following a serious accident involving an overturned lorry and numerous vehicles on the TF-5 ...
Bíll í ljósum logum á Reykjanesbrautinni
📅 02.10.2026 👁️ 0
Bíll í ljósum logum á Reykjanesbrautinni
Bíll stendur í ljósum logum á Reykjanesbrautinni, stutt innan við Grindavíkurafleggjara. Viðbragð á vegum Brunavarna Suðurnesja er á leið á vettvang e...
Í­búar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vega­gerðinni - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Í­búar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vega­gerðinni - Vísir
Reikningar hrönnuðust inn á heimabanka íbúa og einn íbúi sem Vísir ræddi við fékk rukkanir upp á tæplega hálfa milljón króna samtals, meðal annars fyr...
Í beinni: Endurhæfum Reykjalund
📅 02.10.2026 👁️ 0
Í beinni: Endurhæfum Reykjalund
Hér má horfa á beina útsendingu frá söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund til styrktar endurhæfingarmiðstöðinni að Reykjalundi í Mosfells...
Christa Pike unconscious and on ventilator after botched execution, lawyer says
📅 02.10.2026 👁️ 0
Christa Pike unconscious and on ventilator after botched execution, lawyer says
As of Thursday night, Pike remained critically ill and is being treated at a hospital in Nashville, Tennessee.
Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
📅 02.10.2026 👁️ 1
Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) lét í vor gera könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Hún var lögð fyrir rúmlega fjögur þúsu...
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
📅 02.10.2026 👁️ 1
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
Counter terror police say the further charge comes after a "hugely intensive and complex investigation".
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
📅 02.10.2026 👁️ 1
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
Íbúum á Hornafirði brá mörgum heldur betur í brún þegar fyrstu reikningar fyrir að keyra yfir hringveginn yfir Hornafjarðarfljót voru sendir út í dag....
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
Tillögur ríkisstjórnar Spánar, sem áttu að leysa húsnæðiskreppuna sem hefur leitt af sér mikla mótmælaöldu í landinu, voru felldar á spænska þinginu í...
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
📅 02.10.2026 👁️ 1
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
Hákon, nýkrýndur Noregskonungur, setti norska stórþingið í fyrsta sinn í dag sem þjóðhöfðingi landsins.Við setninguna flutti hann ræðu þar sem hann sa...
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
📅 02.10.2026 👁️ 1
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
Eyrarhlíð, vegurinn milli Hnífsdals og Ísafjarðar, er lokaður vegna aurskriðu sem féll á veginn.
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
Lögregla hefur lokað veginum um Eyrarhlíð á Vestfjörðum eftir að aurskriða féll yfir veginn. 
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
📅 02.10.2026 👁️ 1
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
Heimsendingarfyrirtækið Wolt segir fullyrðingar um að sendlar fyrirtækisins starfi í svokallaðri gerviverktöku rangar.Gerviverktaka eigi við þegar ein...
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
📅 02.10.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
Lengi hefur verið plagsiður á Íslandi að kvarta undan sköttum og jafnvel koma sér undan að greiða þá. Nýlega kynnti fjármálaráðherra í hyggju væri að ...
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
Samkvæmt heimildum Vísis hefur einn starfsmaður á skrifstofu Reykjavíkurborgar í Borgartúni fengið staðfestingu á nóróveirusmiti í dag. Þá herma heimi...
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
📅 02.10.2026 👁️ 1
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
Thomas, also known as Danny Tommo, is accused of multiple offences in Dover in the spring.
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
Menntaskólinn í Reykjavík varð 180 ára í gær þó saga hans teygi sig aftur til 1056. Fjölbreytt dagskrá var á vegum skólans í vikunni, á þriðjudagskvöl...
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
Í dag, 2. október, er afmælisdagur Reynis heitins Árnasonar, en hann lést fyrir tæplega ári síðan, þá nýorðinn 78 ára gamall. Dóttir hans, næringarfræ...
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
„Það sló mig verulega að sjá í fréttum að það væru fjórtán pláss í notkun, fjórtán pláss í notkun á Vogi. Staðan á Íslandi er sú að það að eru á milli...
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
📅 02.10.2026 👁️ 1
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
Diesel has now hit an average of £2 a litre in the UK, the RAC motoring group says, with petrol prices also rising.
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir þær breytingar sem hún boðar á veitingu dvalarleyfa nauðsynlegar til þess að fá yfirsýn í mál...
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
Þetta var tilkynnt á fundi forsætisnefndar fyrr í vikunni. Þar segir að Heiða hafi skilað inn tilkynningu um veikindaleyfi ásamt læknisvottorði þar se...
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
📅 02.10.2026 👁️ 2
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni Fréttin2. október 2026Aðsend grein, InnlentLeave a Comment Mynd úr safni. Mannfjöldaspá ...
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
📅 02.10.2026 👁️ 2
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
Verslun á netinu hefur færst mjög í aukana hérlendis síðastliðin ár.„Það hefur verið mjög mikil aukning. Við fórum úr 23 milljörðum árið 2022 og sjáum...
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu þeirra þar sem þau fordæma viðbragðsleysi Samtaka atvinnulífsins við stöðunni.  „Tilefni fundarins er sú st...
Riot police clash with students as education protests rage in France
📅 02.10.2026 👁️ 2
Riot police clash with students as education protests rage in France
More than 600 schools have faced disruption as protests over standards and lack of teachers continue.
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
📅 02.10.2026 👁️ 2
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
Leiðtogar G7-ríkjanna hafa ákveðið að setja 100 milljónir tunna af olíu á markað til að stuðla að lækkun heimsmarkaðsverð á olíu.Greint var frá þessu ...
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, er komin í veikindaleyfi.Þetta kemur fram í fundargerð forsæti...
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
📅 02.10.2026 👁️ 2
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
Það er víða eldfimt í Frakklandi, jafnvel í orðsins fyllstu merkingu. Eldar hafa logað nokkuð víða um landið í dag í mótmælum sem framhaldsskólanemar ...
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
📅 02.10.2026 👁️ 2
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
The woman, known as Jane Doe, alleges she was raped by seven students at a fraternity house at the university in 2024.
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir barnavernd ekki hafa gripið nægilega hratt inn í mál þar sem staðfest sé að börn hafi verið vanrækt og mis...
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
Douglas segir frá þessu 42 ára gamla framhjáhaldi í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, sem kemur út þann 6. október næstkomandi.  Þegar kvikmyndin...
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
📅 02.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
The host says she is "fine" but getting checked after leaving This Morning midway through Friday's show.
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
📅 02.10.2026 👁️ 1
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
The host says she is "fine" but getting checked after leaving midway through Friday's This Morning.
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss. S...
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
Málflutningur var í aðalmeðferðinni í dag og fer héraðssaksóknari fram á 16 ár. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í...
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
📅 02.10.2026 👁️ 2
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
Móðir ungs manns með downs heilkennið og einhverfugreiningu sagði frá því í Þetta helst að hún hefði áhyggjur af heilsu hans. Eftir að hann flutti að ...
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
📅 02.10.2026 👁️ 1
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
Vitaliy Klitschko says Ukraine's capital is in a "very dramatic situation" as Russia hits critical infrastructure.
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
Enginn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins eins og stendur. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglun...
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þvertekur fyrir að ósætti hafi verið á milli hans og Harðar Arnarsonar sem lét í gær af störfum...
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
Héraðssaksóknari krefst hámarksrefsingar, eða 16 ára fangelsis, yfir Georgios Ntentes grískum manni sem er ákærður um að hafa banað portúgölskum manni...
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
📅 02.10.2026 👁️ 2
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hóp...
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
📅 02.10.2026 👁️ 1
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
The defeat raises pressure on Sánchez to call a snap election, after a series of scandals affecting his party and allies.