Gabriel Douane Boama hefur verið dæmdur til eins árs fangelsis fyrir nokkur brot, bæði ofbeldis og fíkniefnabrot. Þá hefur honum verið gert að greiða tveimur fórnarlömbum sínum miskabætur.
Þetta kemur fram í nýbirtum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll þann 8. maí síðastliðinn.
Gabriel á langan brotaferil að baki. Hann vakti fyrst athygli fjölmiðla þegar hann strauk úr haldi lögreglu árið 2022. Síðan þá hefur hann ítrekað komist í fréttir fyrir ýmis brot, einkum ofbeldisbrot.
Kýldi mann kaldann í Hagkaup
Nú hefur Gabriel hlotið uppsafnaðan dóm fyrir líkamsárásir, rán og fíkniefnalagabrot. Voru þrjár aðskildar ákærur sameinaðar í eitt mál. Játaði hann brot sín að hluta.
Á meðal brotanna var líkamsárás gegn manni í Hagkaup í Skeifunni þann 25. júlí. Segir að Gabriel hafi „kýlt hann kaldann“ með berum hnefa í andlitið. Hlaut maðurinn alvarlega áverka, augntóftargólfsbrot og mar í kringum augað.
Árásir á fanga og fangaverði
Gabriel var einnig dæmdur fyrir að hafa kýlt samfanga sinn á Litla Hrauni þann 20. mars árið 2025. Hafi hann komið í klefa brotaþola með tveimur öðrum sem héldu honum niðri á meðan Gabriel lét höggin dynja á honum. Hlaut brotaþolinn einnig augntóftarbrot sem og aðra áverka á auga og augabrún.
Þá var Gabriel dæmdur fyrir tvær árásir á fangaverði. Annar þeirra hlaut meðal annars skurð á hvirfli en hinn hlaut meðal annars heilahristing og áverka á eyra.
Var með símann í sundi á Akranesi
Gabriel var einnig dæmdur fyrir hótanir og rán með hnífi. Þann 17. febrúar árið 2024 settist hann inn í bíl hjá konu og hótaði að beita hnífnum á hana. Á sama tíma rændi hann Apple iPhone farsíma. Lögreglan fann símann þegar hún hafði afskipti af Gabriel í sundlaug á Akranesi.
Sjá einnig:
Gabríel Douane fyrir dóm á morgun vegna fjölmargra brota – Notaði armbandsúr sem hnúajárn á fangaverði
Einnig var Gabriel dæmdur fyrir fíkniefnalagabrot. Voru gerð upptæk hjá honum samanlagt 19,4 grömm af marijúana.
Milljónir í bætur og lögfræðikostnað
Auk fangelsisdómsins var Gabriel gert að greiða tveimur brotaþolum sínum 800 þúsund og 1 milljón króna í miskabætur og um 500 þúsund hvorum í málskostnað. Einnig var honum gert að greiða verjanda sínum rúmar 3 milljónir króna og rúmlega 200 þúsund krónur í annan sakarkostnað.