Borgarstjórnarskosningarnar eru æsispennandi í ár en samkvæmt skoðanakönnunum undanfarinna daga er ekkert öruggt í stöðunni hvað varðar mögulega meirihluta.
Niðurstöður Gallup benda til þess að Sjálfstæðisflokkurinn geti myndað meirihluta með Framsókn og Viðreisn en Maskína var á öðru máli og telja hægri meirihluta ekki mögulegan án aðkomu Viðreisnar.
Skoðanakannanir eru samt í eðli sínu spá og það sem máli skiptir er það sem kemur upp úr kjörkössunum í langstærsta sveitarfélagi landsins og nú er að fást mynd á afstöðu Reykvíkinga þar sem fyrstu tölur eru komnar í hús og eru eftirfarandi, en talin hafa verið 44.300 atkvæði:
- Sjálfstæðisflokkurinn: 31,9%
- Samfylkingin: 18,6%
- Vinstrið: 9,4%
- Viðreisn: 10,1%
- Miðflokkur: 13,1%
- Framsókn:6,9%
- Sósíalistaflokkur: 4,1%
- Píratar: 1,8%
- Flokkur fólksins: 3,3%
- Okkar borg: 0,4%
- Góðan daginn: 0,5%
Auðir seðlar voru 645 og ógildir 114.
Sjálfstæðismenn fengju þannig 9 menn kjörna. Samfylkingin heldur sínum 5 fulltrúum, Viðreisn bætir við sig einum, Miðflokkurinn fengi þrjá menn kjörna, Framsókn tapar þremur borgarfulltrúum, Vinstrið nær inn tveimur og Sósíalistar missa einn fulltrúa. Flokkur fólksins, Píratar, Góðan daginn og Okkar börn næðu ekki enn manni.
Meirihlutinn í borginni er fallinn miðað við stöðuna. Til að mynda meirihluta þarf 12 borgarfulltrúa en gæti Sjálfstæðisflokkurinn myndað meirihluta með Miðflokknum, eða þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsókn.
Niðurstöður borgarstjórnarkosninganna árið 2022 voru eftirfarandi:
- Sjálfstæðisflokkur: 24,5% og 6 borgarfulltrúar
- Samfylkingin: 20,29% og 5 borgarfulltrúar
- Framsóknarflokkurinn: 18,73% og 4 borgarfulltrúar
- Píratar: 11,63% og 3 borgarfulltrúar
- Sósíalistaflokkurinn: 7,7% og 2 borgarfulltrúar
- Viðreisn: 5,19% og 1 borgarfulltrúi
- Flokkur fólksins: 4,51% og 1 borgarfulltrúi
- Vinstri græn: 4% og 1 borgarfulltrúi
- Miðflokkurinn: 2,45% og enginn borgarfulltrúi
- Ábyrg framtíð: 0,79% og enginn borgarfulltrúi
- Reykjavík besta borgin: 0,22% og enginn borgarfulltrúi
Fréttin hefur verið uppfærð en mistök áttu sér stað við upplestur hvað varðar fjölda auðra seðla.