Fyrstu tölur streyma inn frá sveitarfélögunum. Hér eru nýjustu tölurnar:
Í Suðurnesjabæ mælist Samfylkingin stærst með 33,6 prósent atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur 26,8 prósent og þrjá bæjarfulltrúa, Framsókn fær 22,9 prósent og tvo fulltrúa og Miðflokkur 16,7 prósent og einn fulltrúa.
Á Akranesi er Sjálfstæðisflokkurinn að bæta við sig bæjarfulltrúa og mælist með 34,9 prósent greiddra atkvæða. Samfylkingin missir mann með 23,3 prósent atkvæða og það sama á við um Framsókn með 22,9 prósent atkvæða. Viðreisn heldur sínum fulltrúa með 10,2 prósent atkvæða og Miðflokkur nær ekki inn manni með 8,7 prósent atkvæða.
Sjálfstæðisflokkurinn fær fjóra fulltrúa og hreinan meirihluta á Seltjarnarnesi með 50,9 prósent atkvæða. Samfylkingin fær 34,6 prósent og tvo bæjarfulltrúa og Miðflokkurinn fær 14,5 prósent og einn bæjarfulltrúa.
Á Ísafirði bæta Sjálfstæðisflokkur og Framsókn við sig einum bæjarfulltrúa hvor, en Sjálfstæðisflokkurinn fær 33,7 prósent og Framsókn 26,8 prósent sem dugar báðum flokkum fyrir þremur bæjarfulltrúum hvor. Samfylkingin fær 18 prósent og tvo fulltrúa og Viðreisn nær inn einum með 15,3 prósent. Miðflokkurinn er með 6,2 prósent og nær ekki manni inn.