Tveir menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir þátttöku í óeirðum sem brutust út í Southampton í kjölfar morðsins á Henry Nowak. Mennirnir eru þeir fyrstu sem hljóta fangelsisdóm vegna atburðanna, en alls hafa 21 verið ákærðir í tengslum við óeirðirnar.
Connor Bishop, 24 ára, var dæmdur í tveggja ára og átta mánaða fangelsi, en Leon O’Leary, 41 árs, hlaut þriggja ára og eins mánaðar fangelsisdóm eftir að þeir höfðu báðir játað sök fyrir ofbeldisfulla hegðun.
Kastaði reyksprengju að lögreglu
Fyrir dómi kom fram að O’Leary hafi verið meðal mótmælenda fyrir framan lögreglulínu þegar hann sá reyksprengju á jörðinni. Myndbandsupptökur úr búkmyndavél lögreglu sýndu hann taka hana upp og kasta henni í átt að lögreglumönnum.
Hann játaði einnig að hafa veitt lögreglu mótspyrnu við handtöku og að hafa verið með ólöglegt vopn í fórum sínum. Þegar lögregla kom að heimili hans aðfaranótt 7. júní tók hann upp bardagastöðu á stigapalli og hótaði lögreglumönnum. Þeir þurftu að beita piparúða til að yfirbuga hann.
Við húsleit fannst einnig samúræjasverð í svefnherbergi hans. O’Leary sagðist hafa átt sverðið í um tuttugu ár sem skrautmun og ekki vitað að lögum um eignarhald á slíkum sverðum hefði verið breytt.
Ber við hópþrýstingi
Bishop sást á myndskeiðum lögreglu með gula umferðarkeilu sem hann kastaði í átt að lögreglumönnum. Saksóknari sagði að hann hefði hlaupið með keiluna, elt lögreglumenn með hana og tekið hana upp aftur eftir að hafa kastað henni.
Við yfirheyrslur viðurkenndi Bishop einnig að hafa kastað kassa með skrúfum og slegið í vegg, þótt það hefði ekki náðst á myndskeið.
Verjandi hans sagði að Bishop væri dæmi um áhrif hópþrýstings og múgæsings. Sjálfur sagðist Bishop hafa drukkið smávegis af bjór sem hefði gert sig árásargjarnari og að hann hefði kastað hlutum til að falla inn í hópinn.
Verjandinn hélt því fram að hvorki Bishop né O’Leary hefðu verið skipuleggjendur óeirðanna heldur afleiðing af því að aðrir hefðu nýtt sér reiði fólks vegna málsins.
Reiði blossaði upp eftir dóm í morðmálinu
Óeirðirnar brutust út eftir að Vickrum Digwa, 23 ára, var dæmdur í lífstíðarfangelsi með að lágmarki 21 árs afplánun fyrir morðið á Henry Nowak. Digwa hafði haldið því fram að Nowak hefði beitt sig kynþáttafordómum, en dómstóllinn hafnaði þeirri skýringu.
Fleiri bíða dóms
Nítján ára gamall maður, Jordan Hambleton, mætti einnig fyrir dóm vegna þátttöku sinnar í óeirðunum. Hann er sakaður um að hafa kastað meðal annars ruslatunnu, umferðarkeilu, málmstykki og rafhlaupahjóli að lögreglumönnum.
Dómari frestaði þó ákvörðun um refsingu hans þar til frekari matsgerð liggur fyrir, meðal annars vegna ungs aldurs hans og þess að hann hefur ekki áður gerst sekur um afbrot. Hann verður dæmdur síðar.