Ríkissaksóknari Ekvador hefur ákært sjö manns sem taldir eru hafa skipulagt morðið á forsetaframbjóðandanum Fernando Villavicencioskömmu fyrir kosningar árið 2023. Villavicencio þótti sigurstranglegur, hafði starfað sem rannsóknarblaðamaður og hét því að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi næði hann kjöri.
Hann hafði greint yfirvöldum frá líflátshótunum skömmu fyrir morðið. Saksóknari sagði í færslu á X að meðal hinna ákærðu væru Jose Serrano fyrrverandi innanríkisráðherra, Ronny Aleaga fyrrverandi þingmaður og kaupsýslumaðurinn Xavier Jordan sem búsettur er í Bandaríkjunum.
Hann er grunaður um að hafa fjármagnað og skipulagt morðið. Aleaga, sem nýtur hælis í Venesúela, samræmdi aðgerðir á morðstað og Serrano er sagður hafa upplýst glæpagengið Los Lobos um hvar Villavicencio væri að finna.
Fjórir liðsmenn þess eru ákærðir, þar á meðal meintur höfuðpaurinn Wilmer Chavarria sem kallaður er Pipo. Hann er sagður hafa þegið eina milljón bandaríkjadala fyrir að fremja morðið, jafnvirði 124 milljóna króna.
Pipos bíður framsal frá Spáni. Fimm hafa þegar hlotið þunga fangelsisdóma fyrir aðild að tilræðinu. Öryggisverðir drápu byssumanninn sjálfan og sex Kólumbíumenn dæmdir eða grunaðir voru allir myrtir í fangelsi.