Ástralski hermaðurinn Ben Roberts-Smith ætlar að hreinsa nafn sitt af ákæru um grimmilega stríðsglæpi í Afganistan. Hann var álitinn stríðshetja, hefur ekki tjáð sig um ákærurnar fyrr en nú og segist aldrei hafa verið átakafælinn.
„Síðustu tíu ár hef ég og fjölskyldan mátt þola að ég er bendlaður við alvarleg brot meðan ég þjónaði í Afganistan, sem ég þvertek fyrir af öllum mætti,“ sagði Roberts-Smith á blaðamannafundi. Hann er ákærður í fimm liðum fyrir að hafa myrt fjölda óvopnaðra fanga á árunum 2009 til 2012.
Roberts-Smith bætti við að loksins fengi hann tækifæri til að hnekkja áburði um glæpi sem Áströlum hefði skipulega verið talin trú um að hann hefði framið.
Roberts-Smith hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu og kvaðst á blaðamannafundinum stoltur af herþjónustunni í Afganistan sem hann hefði gegnt með fagrar dyggðir að leiðarljósi.
Honum var sleppt gegn tryggingu á föstudag eftir að hafa setið í varðhaldi í tíu daga. Orðstír hans beið hnekki árið 2018 þegar ástralskir miðlar bendluðu hann við dráp á afgönskum föngum.
Hann höfðaði mál gegn fjölmiðlunum en niðurstaða dómara varð sú að umfjöllun þeirra væri í meginatriðum rétt.
Þar var meðal annars staðhæft að hann hefði sparkað óvopnuðum almennum borgara fram af kletti og svo látið skjóta hann. Eins hafi hann tekið þátt í vélbyssuskothríð sem banaði fötluðum manni með gervifót, og gervilimurinn hafi loks verið notaður sem drykkjarílát.