Í stórmerkilegri grein, sem birtist í Morgunblaðinu á mánudaginn, bendir Torben Foss, fyrrverandi ráðuneytisstjóri norska sjávarútvegsráðuneytisins og fulltrúi í samninganefndum Norðmanna um EES og ESB aðild 1994, á það að vitaskuld mun Ísland ekki tapa ráðstöfunarrétti yfir þeim fiskveiðiauðlindum sem það nýtir nú þegar við aðild að ESB. Torben var jafnframt ráðgjafi ríkisstjórnar Íslands þegar Ísland sótti um aðild að ESB og í viðræðunum fram til 2013.
Fyrrum samningamaður Noregs við ESB: Það liggur fyrir að Ísland mun fá varanlegar undanþágur frá sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB