Bandarískur fyrrum Ólympíufari David Hearn hefur verið ákærður fyrir að hafa valdið skemmdum á Spegilstjörninni (e. Reflecting Pool) við Lincoln-minnisvarðann í Washington-borg, sem nýlega var endurgerð í umdeildum framkvæmdum á vegum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Hearn, sem er 67 ára, er sakaður um að hafa losað eða fjarlægt efni af botni tjarnarinnar og þannig valdið frekari skemmdum á framkvæmd sem þegar hafði sætt harðri gagnrýni.
Fjarlægði þéttiefni „af miklu afli og kröftuglega“
Saksóknari í Washington, Jeanine Pirro, hefur sagt ákæruna mikilvæga til að vernda þjóðminjar og tryggja að þeir sem valdi skemmdum á þeim sæti ábyrgð.
Hún sagði starfsmenn þjóðgarðsins hafa séð Hearn þann 19. júní rífa upp og fjarlægja tvö ferfet af þéttiefni af botni laugarinnar „af miklu afli og kröftuglega“ og valda tjóni sem metið er á yfir 1.000 bandaríkjadali, um 125.000 íslenskar krónur.
Hearn er einn af fimm sem hafa verið handteknir vegna meintra skemmda á tjörninni. Hann keppti fyrir hönd Bandaríkjanna í kajakróðri á þrennum Ólympíuleikum: í Barcelona árið 1992, Atlanta árið 1996 og Sydney árið 2000.
Neitar allri sök
David Hearn neitar sök. „Ég eyðilagði ekki neitt,“ sagði Hearn í samtali við The Washington Post í júní. „Ég eyðilagði ekki, braut né reif neitt í tjörninni. Þegar ég áttaði mig á því hvað var í gangi var búið að setja mig í handjárn.“
Hann segir að hann hafi farið að tjörninni að loknum hjólatúr og tekið eftir blárri málningu sem væri að losna. Þá hafi hann teygt sig ofan í vatnið til að finna hvernig efnið væri viðkomu og þá verið handtekinn af lögreglu í garðinum.
Hearn heldur því fram að hann hafi aðeins komið við efni sem þegar hefði verið farið að flagna af botni laugarinnar eftir að hann kom á hjóli um svæðið.
Lögmaður Hearns, Norm Eisen, hefur hafnað ásökununum og segir skjólstæðing sinn ranglega sakaðan. Að hans mati sýni gögn málsins að Hearn hafi ekki valdið þeim skemmdum sem ákæran lýtur að.
Umdeildar framkvæmdir á vegum Trumps
Framkvæmdir á vegum Trumps við Spegilstjörnina hafa verið umdeildar. Tjörnin heitir The Reflecting Pool vegna þess að minnismerkin í Washington eiga að speglast í henni.
Framkvæmdirnar fólust meðal annars í því að tæma tjörnina, endurgera botn hennar og mála hann bláan. Framkvæmdirnar kostuðu um 14 milljónir Bandaríkjadala, eða tæpa 1,8 milljarða íslenskra króna.
Þegar verkinu var lokið hitnaði vatnið vegna bláu málningarinnar og upp spratt mikill þörungablómi sem gerði tjörnina flúorgræna. Þá hefði klór verið hellt í tjörnina og hann hefði eyðilagt málninguna á botninum sem fór að flagna og flygsast upp á yfirborðið.