Íslenska fyrirtækið Kaupumgull.is hefur vakið athygli á Facebook með auglýsingu þar sem það óskar eftir því að fólk hafi samband ef það telur sig hafa fundið svokallaðan ambur (e. ambergris) í fjörum landsins.
Í auglýsingunni segir fyrirtækið að það staðgreiði fyrir staðfestan ambur, sem stundum hefur verið kallaður „fljótandi gull hafsins“ vegna þess hversu verðmætt efnið getur verið.
Ambur tengist búrhvölum og myndast í meltingarfærum þeirra. Efnið getur síðan flotið um hafið árum saman áður en það rekur á land. Á þeim tíma tekur það breytingum og verður að vaxkenndum klumpi sem getur verið mismunandi að lit, allt frá ljósum yfir í dökka eða marmarakennda tóna.
Efnið hefur um aldir verið notað í ilmvatnsgerð þar sem það getur hjálpað ilmefnum að endast lengur og gefið ilmvötnum meiri dýpt.
Segja ambur hafa fundist hér við land
Í athugasemdum við auglýsinguna spurði einn Facebook-notandi hvort ambur hefði yfirhöfuð fundist við Ísland.
Því svaraði fyrirtækið játandi og sagði að slíkt hefði gerst, jafnvel „töluvert af því“.

Aðrir spurðu hvað greitt væri fyrir hvert kíló af ambergris. Fyrirtækið sagði ekkert fast verð vera í gildi heldur færi verð eftir meðal annars gæðum, lit, lykt, ástandi, þyngd og því hvort hægt væri að staðfesta að um raunverulegan ambur væri að ræða.
Verð á ambri getur verið mjög breytilegt á alþjóðlegum mörkuðum og ræðst af gæðum og eftirspurn hverju sinni. Vegna þess hve sjaldgæft efnið er getur verðmæti einstakra funda verið umtalsvert, þó flestir rekaviðarfundir reynist að sjálfsögðu vera eitthvað allt annað en ambur.