Þýska leyniþjónustan fann tvær skammbyssur og skotfæri í skógi fyrir utan höfuðborgina eftir að henni barst ábending í fyrra. Þýskir fjölmiðlar segja að rannsókn hafi beinst að því hvort að rússneska leyniþjónustan hafi ætlað að nota vopnin til þess að fremja launmorð í Þýskalandi.
Maðurinn sem Þjóðverjar vilja fá framseldan er ekki talinn hátt settur. Þjóðerni hans hefur ekki verið gefið upp, að því er kemur fram í frétt The Guardian.
Leyniþjónustan skildi vopnin eftir grafin eftir að þau voru gerð óvirk í þeirri veiki von að eigendur þeirra vitjuðu þeirra. Það gekk þó ekki eftir.
Aðeins tvær viku eru liðnar frá því að þýska lögreglan fann sprengjudróna við flugvöllinn í Leipzig. Þýska leyniþjónustan hefur varað við aukinni hörku í aðgerðum rússnesku leyniþjónustunnar í landinu, þar á meðal áformum um árásir innan Þýskalands.
Rússsar eru grunaðir um að hafa staðið að skemmdarverkum á flutningsleiðum fyrir varning til Úkraínu.
Á meðal þeirra sem Rússar eru taldir hafa hug á að ráða af dögum eru stjórnendur vopnaframleiðenda, stjórnarandstæðingar í útlegð og þekktir stuðningsmenn Úkraínu. Þýskir fjölmiðlar sögðu frá meintum áformum Rússa um að ráðast á forstjóra þýsks drónaframleiðanda.