Keiko Fujimori er komin með óyfirstíganlegt forskot á Roberto Sanchez í kosningum til forsetaembættisins í Perú.
Kosið var í seinni umferð forsetakosninga 7. júní en talning og afstemming stendur enn yfir.
Forskot Fujimoris er næfurþunnt, nú þegar búið er að telja 99,86% prósent atkvæða. Hún hefur fengið 50,12% prósent þeirra.
Forskotið sem hún hefur á Sanchez nemur 43 þúsund atkvæðum. Kjörstjórn á eftir að fara yfir 39 þúsund atkvæði áður en hún getur greint frá lokaniðurstöðum.
Sanchez hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að viðurkenna stjórn undir forystu Fujimoris. Hann sakar hana um alvarleg brot á kosningalögum og telur alvarleg frávik hafa átt sér stað í meðhöndlun atkvæða sem bárust erlendis frá. Þau eru um 300 þúsund.
Fujimori er á hægri ás stjórnmálanna og Sanchez á þeim vinstri. Hún er dóttir Albertos Fujimoris sem var forseti á árunum 1990 til 2000. Hann var síðar dæmdur í fangelsi fyrir glæpi gegn mannkyni vegna aðgerða gegn skæruliðahreyfingum.
Sú þróun hefur sést í nágrannaríkjunum Bólivíu, Chile og Ekvador að fylgi hægrimanna, sem hafa lofað að taka á glæpamönnum af hörku, hefur aukist.