Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, leggur fram frumvarp í haust um hert viðurlög við vændiskaupum. Girt verður fyrir að hægt sé að ljúka máli vegna vændiskaupa með sekt, heldur verið ákært í þeim málum.
Frumvarpið var lagt fram til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í dag.
„Ég hef verið skýr frá því ég tók við embætti að það eigi að taka á þessum málum,“ segir Þorbjörg í skriflegu svari til fréttastofu.
Lögregla hafði afskipti af sextán konum í lögregluaðgerð í Reykjavík í fyrri hluta júní. Aðgerðin stóð yfir í fimm daga. Talið er að kínversk glæpasamtök hafi gert sumar þeirra út í vændi. Fimm vændiskaupendur voru handteknir í sömu aðgerð.
Allt var þetta hluti af samræmdum aðgerðum í 59 löndum víðs vegar um heim.
Þorbjörg segir óásættanlegt að upp spretti rauð hverfi í Reykjavík. Fimm vændiskaupendur voru handteknir í lögregluaðgerð í byrjun júní í Reykjavík.
Miklar umræður upphófust um vændi á Íslandi í kjölfar umfjöllunar Kveiks um málið í vor.
Lögregluaðgerðunum í byrjun júní var sérstaklega beint að mansali – ekki síst vændismansali. Þorbjörg segir tengsl mansals og vændis augljós.
„Á því þarf að taka og það hyggst ég gera. Meðal annars með frumvarpi um skipulagða brotastarfsemi sem kemur fram strax í september.“
Aðeins fimm þolendur í mansalsmálinu leituðu til Bjarkarhlíðar
Aðeins fimm þolendur mansalsins hérlendis leituðu aðstoðar hjá Bjarkarhlíð. Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir að margar ástæður gætu legið að baki því hve fáar leituðu sér aðstoðar, búið sé að hneppa þolendur í ánauð og erfitt sé að skilja stöðu þeirra. Hún segir þó mikið áhyggjuefni hve mikil eftirspurn sé eftir vændi á Íslandi.
„Þessar konur væru ekki hér ef það vær ekki þessi gríðarlega eftirspurn eftir vændi hér á Íslandi. Manni óar eiginlega við því hugsa um alla þessa feður og afa þarna úti sem sinna sinni stöðu vel, sinna vinnu og fjölskyldu en fara svo og brjóta á mannréttindum þessara kvenna með því að kaupa vændi og stuða að þessari gríðarlegu eftirspurn sem er.“