JD Vance varaforseti Bandaríkjanna hefur frestað fyrirhugaðri ferð sinni til Sviss, þar sem viðræður um næstu skref í samkomulagi milli Bandaríkjanna og Íran áttu að fara fram í dag.
Fréttaveitan AFP hafði eftir talsmanni Hvíta hússins að kvöldi fimmtudags, að fyrirkomulag samningaviðræðnanna hefði hvorki verið einfalt né fyrirsjáanlegt. Varaforsetinn færi ekki til Sviss. Það væri þó eftirvænting fyrir því að hefja samningaviðræðurnar eins fljótt og hægt væri.
Samkvæmt írönsku fréttaveitunni Tasnim News Agency, hefur ekkert verið staðfest varðandi ferð írönsku samninganefndarinnar til Sviss.
Íranar var við brotum á samkomulaginu
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Masoud Pezeshkian, forseti Írans, undirrituðu með rafrænum hætti viljayfirlýsingu um að binda enda á stríðsátök í Mið-Austurlöndum í fyrradag.
Aðalsamningamaður Írana, Mohammad Bagher Ghalibaf, varaði við hvers kyns broti á samkomulagi þjóðanna í færslu á X í dag. Komi til þess, verði óvininum svarað með afgerandi hætti.
Reglur um skipaumferð verða hertar
Bandaríkjamenn afléttu herkví sinni við íranskar hafnir í gær. Enn sem komið er hefur takmörkuð skipaumferð verið um Hormússund.
Þjóðaröryggisráð Írans tilkynnti í gær að til stæði að herða reglur fyrir skipaflutninga um sundið. Viðbúið sé að skipaumferð eigi eftir að aukast um sundið. Af öryggisástæðum verði skipum því gert að sigla á ákveðnum tímum og á ákveðnum leiðum um sundið.
Hluti samkomulags Íran við Pakistan felur í sér að tundurdufl verði fjarlægð úr Hormússundi. Íranar ætla ekki að innheimta tolla og gjöld á skip næstu sextíu daga. Bandaríkin og Íran hafa sammælst um að ná endanlegu friðarsamkomulagi innan þess tíma.