Fræg eru orð rithöfundarins Mark Twains þegar hann brást við falsfrétt um sitt eigið andlát árið 1987: „Fregnir af andláti mínu eru stórlega ýktar“. Gjarnan eru þess orð rifjuð upp þegar fjölmiðlar hlaupa á sig og tilkynna sprelllifandi einstaklinga látna. Að þessu sinni er það útvarpsstöðin Radio Caroline sem hljóp rækilega á sig þegar hún tilkynnti um andlát Karls III Bretakonungs.
Hlustendur lýstu því svo að útsending stöðvarinnar hefði verið rofin og í framhaldinu tilkynnti útvarpsþulur að hefðbundnum dagskrárliðum hefði verið frestað vegna andláts Karls III Bretakonungs. Síðan spilaði útvarpið þjóðsöng Breta: God Save the King. Síðan kom um 15 mínútna hlé á útsendingunni áður en útvarpsþulurinn sneri aftur og baðst afsökunar.
Útvarpsstjóri Radio Caroline, Peter Moore, hefur vísað til þess að sökum tæknivillu hafi óvart virkjast vinnuferli sem kallast: Andlát þjóðhöfðingja (e. Death of a Monarch). Samkvæmt vinnuferlinu á strax að rjúfa hefðbundna útsendingu, tilkynna andlátið, flytja þjóðsönginn og gera svo hlé á allri útsendingu til að votta þjóðhöfðingjanum virðingu. Það var á tímanum sem útsending var rofin sem starfsmenn áttuðu sig á mistökunum.
„Við biðjum hans hátign konung sem og hlustendur okkar afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið,“ sagði Moore í afsökunarbeiðni sinni.
Hlustendur urðu fegnir að konungurinn lifir og vorkenna nú útvarpsmönnunum sem hlupu þarna á sig. Einn skrifaði á samfélagsmiðlum: „Það jákvæða er að nú vitum við í það minnsta að þetta ferli er til staðar og það virkar“
Annar skrifaði: „Þarna hefur mörgum runnið kalt vatn milli skinns og hörunds! Ég fékk smá áfall en svona mistök gerast og ég er feginn að þetta var ekki satt.“
Það er óþarfi fyrir fólk að byrja að velta fyrir sér samsæriskenningum um heilsu konungs enda voru hann og eiginkona hans, Camilla drottning, að lenda á Írlandi í gær þar sem tekið var á móti þeim með miklum fagnaðarlátum. Þau voru þar bæði við góða heilsu, stigu léttan dans og skelltu sér svo í brugghús til að smakka írskt viskí.