Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævin­týri - Vísir

Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævin­týri - Vísir

Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævin­týri - Vísir

Margrét Björk gegnir stöðunni „Head Of Digital“ hjá útgáfufyrirtækinu One Little Independent Records í London. Augustin, sem er franskur, er „International & Catalogue manager“ hjá sama fyrirtæki en hjúin hafa verið saman í fjögur ár. Blaðamaður ræddi við Margréti um stóra daginn.

Ævintýri líkast.Abbi Kemp, VBA studio

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Augustin bað mín í Argentínu í desember síðastliðnum þegar við vorum stödd þar í brúðkaupi hjá æskuvinkonu minni í Villa La Angostura í Patagonia. 

Ég ólst upp í Buenos Aires og Argentína á því mjög sérstakan stað í hjarta mínu. Augustin vissi því hversu dýrmætt það væri fyrir mig að biðja mín þar og það gerði augnablikið enn fallegra og persónulegra.

Augustin bað Margrétar í Argentínu og var búinn að biðja ömmu sína og afa um að fá að halda brúðkaupið hjá þeim, á þessum draumastað. Abbi Kemp, VBA studio

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við byrjuðum að skipuleggja brúðkaupið í janúar, þannig að undirbúningurinn tók um hálft ár. Það var ótrúlegt hvað allt small saman á þeim tíma, þó það hafi auðvitað verið nóg að gera.

Hjúin voru í um hálft ár að skipuleggja og allt small. Abbi Kemp, VBA studio

Hvar hélduð þið brúðkaup? Var erfitt að ákveða staðsetningu?

Við giftum okkur heima hjá ömmu og afa Augustin í litlu þorpi um klukkutíma norður af París. Það var í raun aldrei spurning hvar við vildum halda brúðkaupið. Garðurinn og húsið eru eins og beint úr ævintýri og staðurinn hefur haft sérstaka merkingu fyrir okkur.

Það sem gerir þetta enn skemmtilegra er að Augustin hafði í raun beðið afa sinn og ömmu um leyfi hálfu ári áður en hann bað mín. Við vorum öll saman úti að borða og þau töluðu saman á frönsku, þannig að ég hafði enga hugmynd um hvað væri í gangi.

Brúðkaupið var haldið í litlu þorpi norðan af París. Þvílíkur elegans!Abbi Kemp, VBA studio

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Dagurinn var einfaldlega fullkominn og fór fram úr öllum okkar væntingum.

Það sem ég hafði mestar áhyggjur af fyrir fram var að vera svo upptekin af skipulaginu að ég myndi ekki ná að njóta augnabliksins. Þegar maður hefur varið svo miklum tíma og ást í að undirbúa svona dag vill maður ekki horfa til baka og muna bara stressið.

Sem betur fer varð það alls ekki þannig. Við náðum að vera alveg til staðar frá upphafi til enda og njóta þess að hafa allt fólkið sem okkur þykir vænt um saman á einum stað.

Hjónin náðu að njóta dagsins til hins ítrasta, frá upphafi til enda.Abbi Kemp, VBA studio

Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið?

Já. Við vorum með velkomukvöld á föstudeginum þar sem við borðuðum saman og nutum kvöldsins með gestunum. Upphaflega ætluðum við ekki að vera með neitt kvöldið áður, en þar sem fólk hafði ferðast langar leiðir fannst okkur mikilvægt að skapa fleiri tækifæri til að njóta samverunnar.

Við vorum meðal annars með gesti sem komu alla leið frá Argentínu og því fannst okkur dýrmætt að hafa meiri tíma með öllum. Kvöldið var líka frábær ísbrjótur þar sem gestirnir náðu að kynnast áður en stóri dagurinn rann upp og við sjálf þurftum ekki að hitta alla í fyrsta skipti á brúðkaupsdaginn.

Mamma mín, Hrefna Bachmann, sá um allt skipulagið fyrir þetta kvöld og við erum henni ótrúlega þakklát. Á sunnudeginum vorum við svo með brunch með fjölskyldunni sem var yndislegur endapunktur á helginni.

Gleðin var við völd alla brúðkaupshelgina.Abbi Kemp, VBA studio

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já, eiginlega alveg frá byrjun. Við erum yfirleitt mjög sammála og þetta var engin undantekning.

Ég lagði meiri áherslu á útlitið, dagskrána og stemninguna, á meðan Augustin sá meira um samskipti við alla þjónustuaðila og skipulagið á bak við tjöldin.

Við fengum líka ómetanlega hjálp frá fjölskyldunum okkar. Móðir Augustin, Alexandra Eude, er innanhússhönnuður og gaf okkur frábær ráð varðandi uppsetningu og skreytingar.

Hjónin fengu mikla hjálp frá þeirra nánasta fólki og fegurðin var alltumlykjandi.Abbi Kemp, VBA studio

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Við vildum fyrst og fremst að dagurinn hefði gott flæði. Það var mikilvægt fyrir okkur að bæði við og gestirnir fengjum að njóta dagsins, en ekki bara vera að hlaupa á milli dagskrárliða. Það þurfti að vera nóg að gerast, en líka rými til að spjalla, slaka á og taka inn augnablikið.

Tónlist skipti okkur líka gríðarlega miklu máli. Við kynntumst hjá plötuútgáfu í London og erum bæði algjörir tónlistarnördar, þannig að við völdum hvert lag af mikilli natni. Við hugsuðum vel um hvernig tónlistin gæti stutt við stemninguna á hverjum kafla dagsins, allt frá athöfninni og fram á dansgólfið.

Okkur fannst líka mjög mikilvægt að fólkið sem stendur okkur næst fengi að vera virkur hluti af deginum. Þorsteinn Bachmann, frændi minn, gaf okkur saman og leiddi athöfnina. Við vildum að athöfnin væri persónuleg og heimspekileg og hann fór svo fallega með það hlutverk.

Vinkona mín, Franz Lang teiknaði allar myndskreytingarnar fyrir prentefnið, Ása Bríet hannaði brúðarkjólinn minn og vinkona okkar Saoirse sá um tónlistina sem DJ um kvöldið. Það var ótrúlega dýrmætt að fá fólkið sem við elskum til að leggja sitt af mörkum og vera hluti af deginum á sinn hátt.

Þorsteinn Bachman frændi Margrétar gaf hjónin saman og tónlistin spilaði veigamikið hlutverk í kvöldinu.Abbi Kemp, VBA studio

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Við sóttum innblástur úr mörgum áttum, bæði frá brúðkaupum sem við höfum farið í og auðvitað af internetinu. Instagram-algóríthminn minn var nánast orðinn að brúðkaupssíðu eftir að við trúlofuðum okkur.

Það sem skipti okkur mestu máli var þó að dagurinn endurspeglaði okkur sjálf. Við vildum ekki fylgja einhverjum trendum heldur skapa brúðkaup sem var persónulegt.

Hjónin vildu persónulegt brúðkaup sem endurspeglaði þau.Abbi Kemp, VBA studio

Hvað stendur upp úr?

Það sem stendur líklega mest upp úr er að hafa allt fólkið sem okkur þykir vænt um saman á einum stað.

Við vorum með fjölskyldu og vini frá svo mörgum köflum í lífi okkar. Vini mína frá Argentínu, vini mína úr MH, vini sem ég kynntist í háskólanum í Barcelona, vini Augustin úr háskólanum í Madrid og auðvitað vini okkar úr lífinu og tónlistarbransanum í London. Það var ótrúlega fallegt að sjá alla þessa ólíku hópa kynnast og verða hluti af sama deginum.

Svo verð ég auðvitað að nefna Pál Óskar. Ég hef verið mikill aðdáandi síðan ég var barn og hef í gegnum árin þýtt marga af textunum hans yfir á ensku fyrir Augustin. Við héldum því algjörlega leyndu að hann myndi koma fram og að sjá viðbrögðin hjá gestunum var ómetanlegt. 

Ég sendi honum langan óskalista af uppáhaldslögunum mínum, meðal annars nokkur sem hann flytur ekki oft. Það var ótrúlega gaman þegar hann tók þau og sjá hvað allir sungu með og stemningin varð rosaleg.

Páll Óskar tryllti lýðinn að vanda!Abbi Kemp, VBA studio

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Frændi minn, Bjartur Örn Bachmann, og vinur minn, Alfreð Jóhann Eiríksson, sáu um veislustjórnina og þeir voru einfaldlega frábærir.

Bjartur hefur mikla reynslu af því að setja upp sýningar og er einstaklega öruggur á sviði. Alfreð er algjör stemningsmaður og starfar sjálfur í tónlistarbransanum. 

Áður en við vorum trúlofuð hafði hann beðið mig um að veislustýra sínu eigin brúðkaupi, svo þegar kom að okkar stóra degi fannst mér alveg sjálfsagt að biðja hann um að veislustýra okkar. Þeir voru eins og fæddir í hlutverkið og systir mín, Sara Sigríður, hjálpaði þeim svo við skipulagið á bak við tjöldin.

Fyrir utan Pál Óskar voru líka nokkrar óvæntar uppákomur. Augustin steig á svið með vini sínum, Luke Pearce, og þeir tóku nokkur lög saman. Sveppi tók svo Crazy Bastard, sem varð algjört stemningsatriði, og vinkona okkar Saoirse hélt svo dansgólfinu gangandi sem DJ langt fram á kvöld.

Glæsilegar systur, Margrét og Sara Sigríður.Abbi Kemp, VBA studio

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Kannski helst hvað tilfinningarnar voru sterkar.

Ég er mjög félagslynd en hef aldrei sérstaklega notið þess að vera miðpunktur athyglinnar. Ég var því með fiðrildi í maganum fyrir stóru augnablikunum, eins og þegar ég gekk inn athöfnina.

Það kom mér líka á óvart hvað bíómyndir ná í raun að sýna þessar tilfinningar vel. Maður skilur þær ekki alveg fyrr en maður upplifir þær sjálfur.

Tilfinningarnar voru einstaklega sterkar!Abbi Kemp, VBA studio

Hvað voru margir gestir?

Við vorum með um 170 gesti.

Hjónin fögnuðu með 170 vinum og vandamönnum.Abbi Kemp, VBA studio

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblástur fyrir það?

Fyrir nokkrum árum, áður en við trúlofuðum okkur, sagði vinkona mín Ása Bríet að hún ætlaði að hanna brúðarkjólinn minn einn daginn. Þegar við tilkynntum svo trúlofunina var það bókstaflega það fyrsta sem hún sagði áður en hún óskaði okkur til hamingju.

Ég er henni óendanlega þakklát. Kjóllinn var handsaumaður með einstakri smock-tækni úr deadstock Chanel-efni. Ása notaði svo perlur og pallíettur af brúðarkjól mömmu minnar, sem gerði hann enn persónulegri.

Ása Bríet hannaði kjólinn með alls kyns persónulegri nálgun.Abbi Kemp, VBA studio

Ég vissi frá upphafi að mig langaði í puffy ermar og smock-áferð, því það er mjög mikið minn stíll. Kjóllinn var algjörlega eftir mínu höfði, en um leið með fallegu Ásu-ívafi. Hún náði einhvern veginn að sameina mínar hugmyndir og sinn einstaka stíl á fullkominn hátt. Það sést að hundruð klukkustunda og ótrúleg ást fóru í gerð kjólsins.

Svo fékk ég að vera með slör ömmu minnar sem lést úr krabbameini fyrir um tuttugu árum. Það var mér ótrúlega dýrmætt og gaf deginum enn meiri merkingu.
Margrét var með slör frá ömmu sinni sem lést fyrir tuttugu árum.Abbi Kemp, VBA studio

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Mikilvægasta ráðið okkar er að reyna alltaf að minna sig á hvað dagurinn snýst í raun og veru um. Það er svo auðvelt að festast í smáatriðum og stressa sig yfir hlutum sem skipta litlu máli þegar upp er staðið. Það sem fólk man eftir er hvernig því leið og samveran með fólkinu sem því þykir vænt um.

Við mælum líka með að þiggja hjálp frá fjölskyldu og vinum. Það var ómetanlegt fyrir okkur að fá fólkið í kringum okkur til að taka þátt í undirbúningnum og deginum sjálfum, og það gerði brúðkaupið enn persónulegra og þýðingarmeira.

Annað sem við myndum klárlega gera aftur er að taka frá tíma yfir daginn þar sem við vorum bara tvö. Við vorum með tvær myndatökur, eina strax eftir athöfnina og aðra í sólsetrinu, og þær urðu ótrúlega dýrmætar. Þar gátum við stoppað aðeins, andað, talað saman og tekið inn allt sem var að gerast. Dagurinn líður svo hratt og þessi augnablik urðu nokkrar af okkar allra uppáhaldsminningum.

Og síðast en ekki síst, hlustið á innsæið ykkar. Þetta er ykkar dagur og það er engin ein rétt leið til að halda brúðkaup. Það sem skiptir mestu máli er að dagurinn endurspegli ykkur sem par.

Hjónin hlustuðu á innsæið við skipulagið.Abbi Kemp, VBA studio

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Mér finnst eiginlega eins og við séum ekki alveg lent enn. Við vorum nokkra daga hjá ömmu og afa Augustin eftir brúðkaupið að ganga frá og njóta þess að vera með fjölskyldunni. Þaðan fórum við með tuttugu manna vinahóp til Suður-Frakklands og nú erum við á leið til Barcelona að hitta fleiri vini.

Við finnum fyrst og fremst fyrir ótrúlegu þakklæti. Það er skrýtið að vera allt í einu ekki með þetta stóra verkefni fram undan, en ég hef unnið við að skipuleggja tónlistarviðburði í mörg ár og þekki þessa tilfinningu þegar stóru verkefni lýkur.

Næsti kafli hjá okkur er svo flutningur til Íslands. Ég hef ekki búið þar í ellefu ár og fyrir Augustin verður þetta í fyrsta sinn sem hann býr á Íslandi. Við erum því bæði mjög spennt fyrir því sem tekur við.

Næst á dagskrá eru flutningar til Íslands!Abbi Kemp, VBA studio
#beint #draumabrúðkaup #eins #franskt #ævintýri


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262909614d/franskt-draumabrudkaup-eins-og-beint-ur-aevin-tyri

📰 Aðrar fréttir

Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
📅 18.10.2026 👁️ 3
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna telur innflytjendur í Frakklandi eiga sök á ofbeldi í mótmælaöldunni sem riðið hefur yfir franskar borgir. Þetta se...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 3
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 2
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
Number of casualties unknown in "very, very active and delicate" situation in Alberta, says defence minister.
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
Donald Trump Bandaríkjaforseti setti viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á ís til að kanna hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir efnahag Bandaríkjanna ...
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
📅 18.10.2026 👁️ 3
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
An historic town hall in the southern French city of Limoges was set ablaze during national protests.
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
📅 18.10.2026 👁️ 3
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
New filings show the world's richest person spent this summer again trying to help Republicans win office, with most of his focus on one candidate.
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
📅 18.10.2026 👁️ 3
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
The sports industry's lucrative business model is being undermined by dodgy TV sticks and illegal streaming links, writes Theo Leggett.
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram.  „Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond. Birta Huld er hársnyrtir hjá Session...
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
📅 17.10.2026 👁️ 4
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
The Times reports soldiers accused of murder were sent into war zones while still under police investigation.
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
📅 17.10.2026 👁️ 4
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
Diane Watson's best friend Pauline recalls a shocking school murder and its lasting legacy.
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar bað í kvöld Jón Gnarr afsökunar á ummælum sem hann lét falla í útvarpsþættinum Vikulokum í dag. Grímur segist haf...
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hefur beðið fyrrum kollega sinn úr þingflokknum afsökunar á ummælum sem féllu í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.Þa...
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
Bandaríska sjónvarpsstöðin KWCH hefur eftir lögreglumanninum Aaron Moses að ökumaðurinn sé í gæsluvarðhaldi og að engum stafi lengur ógn af ökumanninu...
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og...
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrae...
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
📅 17.10.2026 👁️ 4
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
Satellite images give clues about how Kim spends his holidays - something far out of reach for most North Koreans.
Biður Jón af­sökunar - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Biður Jón af­sökunar - Vísir
Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undan...
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
📅 17.10.2026 👁️ 4
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
WBO world champion Daniel Dubois underlines his status as Britain's leading heavyweight with a devastating second-round stoppage of Fabio Wardley.
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
📅 17.10.2026 👁️ 4
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
Demonstrations across the country turned violent, with cars and buildings set alight and shops ransacked.
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemen...
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í ...
Anti-government protesters battle with police in Albania
📅 17.10.2026 👁️ 4
Anti-government protesters battle with police in Albania
There were violent clashes between demonstrators and riot police throughout Saturday in the capital Tirana.
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
Rúm hálf milljón tók þátt í mótmælunum í Frakklandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu innanríkisráðuneytis Frakklands. Af þeim 550.000 sem mótmælt...
„Verið að spila með líf fólks“
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Verið að spila með líf fólks“
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir Seðlabankann hafa gengið of langt með því að skapa viljandi efnahagsaðstæður sem auka at...
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
„Það er mikið dómsdagstal því það eru átök svo víða og mannréttindi eru brotin í stórum stíl. Við sjáum þessa nýju tilhneigingu til þess að valdamikli...
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur h...
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hótaði ólögráða barni með trjádrumb
Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir hótun og barnaverndarbrot samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sem féll þa...
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ari nýr for­maður Ungra vinstri grænna - Vísir
Ari tekur við af Illuga Gunnarssyni sem hefur gegnt formennsku frá því í febrúar á þessu ári. Í stjórn voru einnig kjörin Elísabet Freyja Úlfarsdóttir...
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn - Vísir
Jakob Hansen aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kaupmannahöfn segir við danska ríkisútvarpið að lögreglumenn hafi handtekið tvo hvorn í sínum mótmælum við Kó...
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ungir strákar í haldi vegna skotárásar í Svíþjóð
Tveir drengir undir 18 ára að aldri eru í haldi grunaðir um tilraun til manndráps eftir að ung kona var skotin í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænska ríkisú...
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair
Au pair er franska og gæti sem best þýtt jafningi á íslensku. Hugtakið er notað yfir ungt fólk, aðallega konur, sem sækjast eftir vist hjá fjölskyldum...
France protests: Violent clashes, looting and buildings ablaze as over 1,000 arrested
📅 17.10.2026 👁️ 3
France protests: Violent clashes, looting and buildings ablaze as over 1,000 arrested
Disorder broke out in cities across the country on a day in which more than half a million joined cost of living protests.
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
📅 17.10.2026 👁️ 4
European diplomats attacked by Israeli settlers in West Bank
The Israeli military condemns the violence but the prime minister's office says it is part of a "smear" campaign.
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
📅 17.10.2026 👁️ 4
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig
Bresk TikTok-stjarna á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dúbaí – segist hafa verið að verja sig Fréttin17. október 2026Dómsmál, ErlentLeave a Comment Bro...
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sér­stakt heldur“ - Vísir
„Já, það er mjög hvasst hérna og líka byrjað að rigna. Þetta er nánast orðið að stormi,“ sagði Marim, starfsmaður á veitingastaðnum Sker í Ólafsvík. H...
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
📅 17.10.2026 👁️ 4
Swinney's emotional explanation for his commitment to independence
BBC Scotland's political editor Glenn Campbell reflects on John Swinney's SNP conference speech.
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lést í slysi á hálendinu í gærkvöldi
Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst á níunda tímanum í gær tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. Fjölmennt lið viðbra...
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra
Ísraelskt landtökufólk á Vesturbakkanum réðst á franskan bæjarstjóra í þorpinu Taybeh í dag. Landtökufólk herjar reglulega á íbúa í þorpinu. Bernard B...
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
📅 17.10.2026 👁️ 4
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu á Gæsavatnaleið
Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á hálendinu norðan Vatnajökuls á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið á...
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gærkvöldi að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra eftir að tilkynning hafði borist um s...
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma - Vísir
Í grein sinni bendir Björg Eva til að byrja með á að gagnaverið At-north á Íslandi hafi nýlega birt leikna auglýsingu um starfsemi sína, þar sem gagna...
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
📅 17.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?
Orðið á götunni er að Marta María Winkel í Smartlandi Morgunblaðsins hafi hitt naglann á höfuðið er hún skrifaði um sundferð fimm þingmanna stjórnaran...
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Leggi línuna að sam­þykki veiti rétt til að stór­skaða fólk - Vísir
Umræddur dómur var kveðinn upp í Landsrétti í gær. Karlmaður, sem áður hefur verið dæmdur fyrir nauðgun, var ákærður í annað sinn fyrir nauðgun og dæm...
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
📅 17.10.2026 👁️ 5
Annar mótmælandi missti hönd í Frakklandi
Franskur mótmælandi missti aðra höndina í borginni Saint-Etienne í dag. Þetta var annar mótmælandinn til að missa hönd í álíka aðstæðum í miklum mótmæ...
Vara við „perra­gler­augum“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Vara við „perra­gler­augum“ - Vísir
Persónuvernd vekur athygli á yfirlýsingunni í tilkynningu á vef sínum. Þar segir að gleraugun geti verið búin myndavélum og hljóðnemum sem gera notend...
Hvað er hlaupsekúnda og af hverju verður hún afnumin?
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hvað er hlaupsekúnda og af hverju verður hún afnumin?
Frá árinu 1972 hefur hlaupsekúndu verið bætt við klukkuna 27 sinnum. Nú hafa alþjóðleg samtök um mælieiningar ákveðið að afnema hana og taka upp hlaup...
Segir samfélagið gera fáránlegar kröfur til karlmanna en gagnrýni á konur sé bönnuð
📅 17.10.2026 👁️ 4
Segir samfélagið gera fáránlegar kröfur til karlmanna en gagnrýni á konur sé bönnuð
Fjölmiðlafræðingurinn Íris Erlendsdóttir segir samfélagið okkar gera fáránlegar kröfur til karlmanna, þeir megi varla segja nokkuð sem gæti mögulega s...
Emi Martinez injury mars first Chelsea clean sheet in nine months
📅 17.10.2026 👁️ 4
Emi Martinez injury mars first Chelsea clean sheet in nine months
Goalkeeper Emiliano Martinez was taken to hospital as Chelsea's 2-0 win at Everton on Saturday meant they secured their first clean sheet in nine mont...
„Mjög lítil vinnsla“ í nefnd sem Jón leiddi
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Mjög lítil vinnsla“ í nefnd sem Jón leiddi
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, segir að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, fór fy...