Framsóknarmenn í Hafnarfirði hafna fullyrðingum í sinn garð um trúnaðarbrest vegna viðræðna um myndun meirihluta í bæjarstjórn eftir kosningar.
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar sögðu í hádegisfréttum RÚV í dag að Framsóknarmenn hefðu verið í viðræðum við bæði á sama tíma. Þetta kölluðu þau trúnaðarbrest og svik og sögðu ekki hægt að starfa með Framsókn.
Í yfirlýsingu Framsóknarmanna í Hafnarfirði segir að í símtali Valdimars Víðissonar, oddvita Framsóknarflokksins, og Orra Björnssonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins, á þriðjudag hafi komið skýrt fram að ekki væri hægt að komast lengra að sinni í viðræðum um meirihlutamyndun.
„Við slíkar aðstæður er bæði eðlilegt og ábyrgt að forystumenn stjórnmálaflokka eigi óformleg samtöl við aðra flokka þar sem farið er yfir samstarfsfleti og málefni áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar um myndun meirihluta. Það er því miður að forysta Sjálfstæðisflokksins kjósi nú að stilla málum upp með þessum hætti.“
Hálfum sólarhring eftir að þessi staðan, mun hafa komið upp, samkvæmt lýsingu Framsóknarmanna sendi Valdimar út sameiginlega yfirlýsingu sína og Orra í tölvupósti, rétt fyrir klukkan tólf í gær. Þar sagði að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hefðu ákveðið að hefja formlegar viðræður um áframhaldandi meirihlutasamstarf. Þar sagði að sú vinna hæfist þegar og að skipting helstu embætta yrði ákveðin í kjölfarið.
„Ásakanir um óheiðarleika og trúnaðarbrest eiga ekki við rök að styðjast,“ segja Framsóknarmenn í tilkynningu sinni. „Þvert á móti er það alvarlegt þegar slíkar fullyrðingar eru settar fram í pólitískum tilgangi án þess að þær standist skoðun. Framsókn mun áfram nálgast viðræður um framtíð Hafnarfjarðar af heilindum, ábyrgð og virðingu fyrir niðurstöðu kjósenda.“