Oddviti Framsóknarflokksins í Grindavík segir góða kjörsókn í bænum, rúm 75 prósent, til marks um að Grindvíkingum sé alvara með endurreisn bæjarins. Framsóknarflokkurinn varð hlutskarpastur og bætti við sig tveimur fulltrúum í bæjarstjórn.
„Ég og við erum gríðarlega sátt við þessa kosningu sem við fengum afgerandi umboð til forystu á næsta kjörtímabili þannig að þetta er mjög ánægjulegt fyrir okkur og fyrir Grindvíkinga alla í rauninni. Þetta var bara ánægjulegur dagur og var ágætis kosningaþátttaka og mikið líf í Grindavík í gær,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Grindavík.
Miðflokkurinn var stærsti flokkurinn í síðustu sveitarstjórnarkosningum í Grindavík en sat þó í minnihluta með þrjá fulltrúa af sjö. Framsóknarflokkur var í meirihluta með Sjálfstæðisflokki, sem bætti við sig manni og fær tvo fulltrúa, og Rödd unga fólksins, sem bauð ekki fram í ár.
Ásrún segir alla flokka hafa unnið vel saman á síðasta kjörtímabili en að hún telji að það þurfi að mynda meirihluta.
„Mér finnst í rauninni íbúar gefa það skýrt til kynna að þeir vilji áframhaldandi samstarf milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins, það er þarna kringum 85% sem flokkarnir eru með samanlagt,“ segir Ásrún.
Ásrún segir það hafa verið á málefnaskrá Framsóknarflokksins að auglýsa eftir bæjarstjóra og því sækist hún ekki eftir bæjarstjórastólnum.