Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli sem snýr að innflutningi á rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa.
Fjórmenningarnir, sem eru íslenskir, eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri.
Þrír þeirra voru handteknir í viðamiklum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslunnar um miðjan mánuðinn en sá fjórði var handtekinn í síðustu viku og húsleit gerð hjá tveimur.
Varðhaldið yfir þeim síðastnefnda hefur verið framlengt til 5. maí á grundvelli rannsóknarhagsmuna líkt og gildir um einn af þeim sem voru handteknir í aðgerðum lögreglu fyrr í mánuðinum.
Hinum tveimur hefur sömuleiðis verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, en nú á grundvelli almannahagsmuna til 25. maí.