Gervigreind verði nýtt til góðs
Alþjóðlega ráðgjafanefndin, sem Halla Tómasdóttir tekur sæti í, kom saman í fyrsta sinn í dag í Genf í Sviss í tengslum við heimsþing um gervigreind til góðs sem haldið er þessa dagana í borginni. Halla er meðal stofnfélaga nefndarinnar. Heimsþingið er haldið á vegum Alþjóðafjarskiptasambandsins og er hluti af stafrænni viku í Genf.
Forseti Íslands ávarpar ráðstefnurnar
Á sama tíma fara fram tvær ráðstefnur í borginni á vegum Sameinuðu þjóðanna. Önnur er um upplýsingasamfélagið og hin um opinbera stefnumótun á sviði gervigreindar. Forseti Íslands ávarpaði síðarnefndu ráðstefnuna í gær og gesti á heimsþinginu í dag. Halla Tómasdóttir hefur lagt ríka áherslu á að tækniframfarir verði að þjóna almenningi og að sú samfélagslega umbreyting sem felist í þróun gervigreindar auki ekki ójöfnuð, eins og segir á heimasíðu forsetans.
Björn í ABBA meðal ræðumanna
Á heimsþinginu talar fjöldi þekktra einstaklinga, meðal þeirra eru Annalena Baerbock fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands, Brad Smith yfirstjórnandi Microsoft og Björn Ulvaeus sem er þekktastur fyrir að vera annað B-ið í hinni heimsþekktu hljómsveit ABBA.