Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að nefndin komin saman í fyrsta sinn í Genf í Sviss næskomandi miðvikudag í tengslum við Heimsþing um gervigreind til góðs (The AI for Good Global Summit).
„Heimsþing um gervigreind til góðs, sem haldið er á vegum Alþjóðafjarskiptasambandsins ITU, fer fram dagana 7.–10. júlí. Þingið er hluti af Stafrænni viku í Genf (Geneva Digital Week). Þar eru einnig á dagskrá tvær ráðstefnur á vegum Sameinuðu þjóðanna, önnur um upplýsingasamfélagið (World Summit on the Information Society) og hin um opinbera stefnumótun á sviði gervigreindar (Global Dialogue on AI Governance). Forseti mun ávarpa gesti á síðastnefndu ráðstefnunni á morgun, þriðjudaginn 7. júlí, og gesti á Heimsþingi um gervigreind til góðs miðvikudaginn 8. júlí. Einnig mun hún eiga fundi með þátttakendum í þessum viðburðum.
Forseti hefur á liðnum misserum lagt ríka áherslu á að tækniframfarir verði að þjóna almenningi, að ungt fólk fái að hlutast til um mótun framtíðar sinnar og að sú samfélagslega umbreyting sem felst í þróun gervigreindar auki ekki ójöfnuð,“ segir í tilkynningunni.