Forsætisráðherra Breta berst fyrir pólitísku lífi sínu

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Ósigur Verkamannaflokksins er um að kenna, en flokkurinn galt afhroð í sveitarstjórnarkosningunum. Menn fara í röð til að krefjast afsagnar Keir Starmer.
Þegar horft er til stjórnarhátta hans undanfarin ár er fátt sem gleður hinn almenn borgara. Stramer var yfirmaður lögreglu þegar nauðgunargengin var plága í landinu, þá mátti ekki gera neitt af hræðslu við rasistastimpil. Stúlkum blæddi.
Stramer hefur virt að vettugi lög sem banna karlmönnum sem skilgreina sig konur og nota einkarými kvenna að vettugi. Hann hefur talað gegn konum í því samhengi.
Stramer er fylgjandi löggjöf um haturorðræðu og skipar svo fyrir að menn skulu sóttir til saka af minnsta tilefni. Hann hefur sett lögreglu til höfuðs almennum breskum borgurum sem vilja land sitt, menningu, tungumál og trúarbrögð til baka.
Stramer er farin að daðra við ESB að nýju, það er vont skref inn í framtíðina.
Herða þarf innflytjendalöggjöf og virkja þarf vörslu á landamæri enn frekar til að koma í veg fyrir að ólöglegir hælisleitendur nái þar fótfestu. Langoftast er verið að tala um unga karlmenn frá löndum sem hafa gjörólíka menningu. Taka þarf á ólöglegum hælisleitendum af festu og koma þeim frá landinu, í Bretlandi eins og í öðrum Evrópuþjóðum.
Er nokkur undra að menn hafni svona stjórnunarháttum, varla.
Hnignun flokksins
Það eru innan við tvö ár síðan Keir Starmer tryggði flokknum tvö af hverjum þremur sætum í neðri deild breska þingsins í síðustu þingkosningum. Í dag er öldin önnur, hann er óvinsælasti forætisráherrann ef frá er talin Liz Truss.
Þingmenn, ráðherrar og verkalýðsfélög keppast um að óska afsagnar hans, eftir niðurlægjandi kosningu.
Barist er um 5014 sæti í sveitarstjórnarkosningunum í Englandi. Verkamannaflokkurinn hafi tæplega 2500 sætanna. Nú hafa þeir tapað um helming þeirra. Kosningabaráttan einkenndist af staðbundnum málum, sköttum, vegum, húsnæðisskorti og skólunum. Málefnum sem hver bær og borg á að hugsa um.
Reform UK
Farage er stórsigurvegari kosninganna og allt stefnir í að Reform UK vinni yfir 1000 sæti um allt land.
Flokkurinn náði fjölda glæsilegra sigra í vígi Verkamannaflokksins, eins og Sunderland, Gateshead, Barnsley og St Helens.
Farage sagði ,,þetta er frábær, frábær dagur, ekki bara fyrir flokkinn heldur fyrir algjöra endurskipulagningu breskra stjórnmála á öllum sviðum.
Farage fagnaði og sagði þetta sögulega breytingu á breskum stjónmálum og við blaðamenn sagði hann ,,í Bretlandi er ekki lengur bara vinstri-hægri og val á milli Verkamannaflokksins og íhaldsflokksins.”
Leiðtogi Íhaldsflokksins
Olukemi Olufunto Adegoke Baderonch sagðist mjög stolt af árangri flokksins þrátt fyrir að hundruðu sæta hefðu tapast en þetta væri tákn um betra gengi eftir sögulegt hrun flokksins í þingkosningunum 2024.
Skotland
Í skotlandi voru 129 sæti í boði og þjóðernisflokkurinn SNP virðist halda sínu og vera áfram stærsti flokkurinn. Valdatíð hans spannar 19 ár.
Eftir rúma öld við völd í Wales þarf Verkamannaflokkurinn að afhenda keflið til þjóðaflokksins Plaid Cymru og lendir í þriðja sætinu því flokkur Nigel Farage, Reform UK, sem er aðeins nokkurra ára gamall, lenti í öðru sæti.
Það verður áhugavert, á komandi árum, að fylgjast með hvort lýðurinn finni og sjái breytingar vegna stjórnarskipta í fjölmörgum bæjarfélögum.